Óttast að kreppan bíti Liverpool í janúar 12. nóvember 2008 10:37 Eigendur Liverpool skulda háar fjárhæðir og gætu lent í vandræðum á komandi mánuðum AFP
Keith Harris, maðurinn sem tekið hefur þátt í að semja um yfirtöku á fimm félögum í ensku úrvalsdeildinni, segist óttast hið versta fyrir hönd Liverpool á næstu mánuðum. Harris var einn af mönnunum sem sá um að keyra í gegn yfirtöku á Chelsea, Aston Villa, Hull, West Ham og Manchester City og hann segir að Liverpool gæti þurft að selja leikmenn í janúar til að mæta gríðarlegum skuldum eigenda félagsins. Sagt er að þeir Tom Hicks og George Gillett hafi tvo mánuði til að greiða allt að 350 milljón punda skuldir tengdar félaginu. Harris segir að bankarnir gætu þurft að gera það upp við sig hvort þeir ættu að hirða félagið upp í skuldir ef eigendunum tekst ekki að endurfjármagna sig eða fá aukið hlutafé. Þá kæmi til greina að félagið gæti þurft að selja eitthvað af bestu leikmönnum sínum. "Félagið sem ég hef mestar áhyggjur af er Liverpool. Það hefur aldrei verið eins erfitt að finna kaupendur. Það snýst ekki um það að karpa um verð, heldur hvort kaupendur fást yfir höfuð," sagði Harris. Hann hefur áhyggjur af bönkunum sem lánuðu Liverpool og telur óvíst að þeir geti haldið því áfram. "Liverpool þarf að greiða skuldir í janúar sem hugsanlega væri hægt að fresta í sex mánuði, en bankarnir sem eiga inni hjá félaginu, Royal Bank of Scotland og Wachovia, eru tveir af bönkunum sem hvað verst hafa komið út úr kreppunni. Hvort sem þeir vilja lána Liverpool áfram eða ekki - er óvíst að þeir hafi einu sinni tök á því," sagði Harris sem er stjórnarformaður Seymour Pierce fjárfestingabankans.
Enski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira