Enski boltinn

Ronaldo leikmaður ársins hjá FifPro

NordicPhotos/GettyImages

Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins 2008 hjá FifPro, sem eru regnhlífarsamtök atvinnuknattspyrnumanna.

Það var Brasilíumaðurinn Kaka sem vann til þessara verðlauna á síðasta ári, en talið er að þessi útnefning Ronaldo verði ekki sú síðasta á árinu. Hann skoraði 42 mör fyrir Manchester United í öllum keppnum á síðustu leiktíð.

Úrvalslið FifPro 2008:

Iker Casillas (Real Madrid), Sergio Ramos (Real Madrid), John Terry (Chelsea), Rio Ferdinand (Manchester United), Carles Puyol (Barcelona), Steven Gerrard (Liverpool), Kaka (AC Milan), Xavi (Barcelona), Lionel Messi (Barcelona), Fernando Torres (Liverpool), Cristiano Ronaldo (Manchester United).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×