Enski boltinn

Ronaldo undir hnífinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ronaldo á Evrópumóti landsliða.
Ronaldo á Evrópumóti landsliða.

Cristiano Ronaldo fór í aðgerð á ökkla í dag. Aðgerðin var framkvæmd í Amsterdam í Hollandi en þessi ökklameiðsli hafa verið að hrjá hann um nokkurt skeið.

Hann ætlaði að bíða með aðgerðina þar til hann kæmi úr sumarfríi en talið var nauðsynlegt að framkvæma hana sem fyrst. Ronaldo verður frá í sex vikur og mun líklega missa af byrjun næsta tímabils.

Framtíð Ronaldo er í óvissu en á hverjum degi berast fréttir um að hann sé á leið til Real Madrid og einnig fréttir þess efnis að hann verði áfram hjá Manchester United. Hann heldur heim á leið frá Amsterdam á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×