Sprengja sex til sjö hundruð tonn af flugeldum 29. desember 2008 20:31
Bardagatertur, skotkökur og risatertur hafa átt vaxandi vinsældum að fagna meðal almennings og því er líklegt að víða standi tómir tertukassar á nýársdagsmorgni. Mælst er til þess að kaupendur flugelda fari sjálfir með umbúðir og aðrar skotleifar í endurvinnslustöðvar Sorpu. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Þar segir að þrátt fyrir dregið hafi verulega úr innflutningi á flugeldum sé búist við að kveikt verði í sex til sjö hundruð tonnum af flugeldum í kringum áramótin. „Íbúar á Höfuðborgarsvæðinu eru því hvattir til þess að skila umbúðum og leifum af flugeldum og tertum á endurvinnslustöðvar Sorpu sem opna 2. janúar. Flugeldar eiga ekki að fara í sorptunnur heimila. Þær myndu fyllast skjótlega og einnig er hætta á íkveikju. Meginreglan er að íbúar í hverju borgarhverfi hreinsi sjálfir sitt nánasta umhverfi eftir að hafa kvatt gamla árið með flugeldum og fari með leifarnar í Sorpu 2. janúar. Búast má við svifryksmengun á gamlárskvöld og nýársnótt því skottertur og blys valda miklum reyk. Heilsuverndarmörk fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Svifryk hefur farið yfir heilsuverndarmörk á nýársdag undanfarin ár. Spáð er austan kalda um áramót og að vindur verði 5-8 m/s."
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Sjá meira