Olíusamráðsmálinu frestað enn um sinn 29. desember 2008 06:30 Forsvarsmenn Olíufélaganna funda með samkeppniseftirliti árið 2005 Enn er ekki fyrirséð hvenær niðurstaða fæst í mál olíufélaganna gegn Samkeppniseftirlitinu og ríkinu. Þau vilja ekki borga sekt fyrir samráðið. fréttablaðið/stefán
Olíufélögin fóru fram á frest í máli þeirra gegn Samkeppniseftirlitinu og ríkinu og boðuðu að þau legðu fram nýjar matsbeiðnir í því þegar það var tekið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur fyrr í mánuðinum. „Það er því fyrirsjáanlegt að málið mun halda áfram og dragast enn um allmarga mánuði. Leggi þau fram nýja matsbeiðni tel ég útilokað að unnt verði að flytja þetta mál fyrr en í fyrsta lagi haustið 2009,“ segir Heimir Örn Herbertsson, lögmaður stjórnvalda. Málið hefur verið rekið fyrir dómstólum síðan árið 2005. Félögin krefjast ógildingar þeirrar ákvörðunar að þau séu sek um samráð, en til vara að sekt þeirra verði lækkuð. Félögin voru upphaflega sektuð um 2,6 milljarða, en áfrýjunarnefnd samkeppnismála lækkaði hana síðar í 1,5 milljarða. Þegar félögin brugðust við sektinni og höfðuðu mál óskuðu þau eftir því að kallaðir væru til dómskvaddir matsmenn til að greina forsendur sektarinnar, segir Heimir Örn. Eftir mánaðabið hafi niðurstaða borist, sem sagði að hugsanlegt væri að félögin hefðu engan ávinning haft af samráðinu. Þá lét Samkeppniseftirlitið kalla til yfirmatsmenn til að hnekkja niðurstöðu matsmannanna og lagði fram svokallaða undirmatsbeiðni til að láta meta önnur atriði en olíufélögin létu meta. Niðurstaða þessa var yfirmatsgerð sem var „algjörlega ósammála undirmati [félaganna]“ segir Heimir Örn. Samkvæmt henni hefðu félögin hagnast á brotum sínum, langt umfram sektarupphæðina. Þetta mat hafi verið lagt fram fyrir allnokkru en málinu síðan frestað til þessa mánaðar, svo olíufélögin gætu ákveðið hvort þau vildu freista þess að hnekkja undirmatinu eða fresta flutningi málsins. Heimir Örn segir að strangt til tekið séu engin tímamörk í málarekstri af þessu tagi. „Það er ekkert sjálfkrafa stopp sem kemur í það og það er mikil tilhneiging til að gefa málsaðilum mikið svigrúm til að meta sjálfir hvað þeim finnst nauðsynlegt að sanna.“ Málsmeðferðin verði þó ekki endalaus.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira