Gengishækkun aflýst í Laxá á Ásum 29. desember 2008 05:00 Veiðileyfi í Laxá í Ásum er meðal þeirra aldýrustu á landinu enda aðeins veitt á tvær stangir í allri ánni.
Veiðifélag Laxár á Ásum, einnar dýrustu stangveiðiár landsins, mun á fundi milli jóla og nýárs ákveða hvort gefin verður eftir mikil hækkun á leigunni fyrir ána. Að sögn Páls Þórhallssonar, formanns veiðifélagsins, hefur leigutaki Laxár á Ásum, Lax-á ehf, farið fram á að leigan verði lækkuð. Samningurinn við Lax-á sé verðtryggður á þrjá mismundandi vegu. „Samningurinn er að einum þriðja bundinn neysluvísitölu, einum þriðja evru og einum þriðja dollar. Þetta hefur hækkað þvílíkt að það er sjálfsagt ekki fræðilegur möguleiki að þetta standi undir sér,“ segir Páll sem kveður tillögu munu verða lagða fyrir fund veiðifélagsins um að aftengja gengisþáttinn en halda innlenda verðbólguþættinum. Samkvæmt fundarboði veiðifélagsins féllst stjórnin á að leigan fyrir Laxá yrði 21 milljón króna næsta sumar með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Páll segir að þótt strangt til tekið væri hægt að gera kröfu um efndir á samningnum hafi verið í honum útgönguleið fyrir leigutakann. „Það er ákvæði um að ef upp koma óviðráðanlegir hlutir og þar á meðal er stórkostleg fjármálakreppa. Við myndum kannski ekki geta neitað því að það gæti átt við.“ Að sögn Páls mun sala veiðileyfa fyrir næsta ár hafa gengið afar treglega fram að þessu. „Það veit enginn hver staðan verður eftir mánuð - hvað þá í vor - svo menn halda að sé höndum,“ segir Páll sem kveður marga leigutaka nú ræða við veiðiréttarhafa um breytingar.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Fleiri en einn hafi verið að verki Innlent Fleiri fréttir Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Sjá meira