Nýi Glitnir lánar húsnæði til Nýsköpunar 29. desember 2008 17:23 Birna Einarsdóttir bankastjóri Nýja Glitnis og Sigríður Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri á Nýsköpunarmiðstöð undirrita samninginn.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýi Glitnir undirrituðu í dag samning um rekstur nýs viðskiptaseturs í húsnæði Nýja Glitnis í Lækjargötu. Nýi Glitnir leggur til tvær hæðir í húsnæði bankans í Lækjargötu 12 en rekstur setursins verður í höndum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöðinni og Nýja Glitni. Þar segir ennfremur að á viðskiptasetrinu í Lækjargötu verði skrifstofuaðstaða fyrir 30 manns. Undanfarnar vikur hefur orðið gífurleg vakning um mikilvægi nýsköpunar og er samningur Nýja Glitnis og Nýsköpunarmiðstöðvar liður í aðgerðum miðstöðvarinnar til að styðja við sprotafyrirtæki. ,,Ég er mjög ánægð með þetta samstarf okkar við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það hefur sjaldan verið jafnmikilvægt að hlúa að sprotastarfsemi á Íslandi og nú og ég er viss um að starfsemin í þessu húsi á eftir að bera ávöxt," segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis. Í nýja viðskiptasetrinu í Lækjargötu munu einstaklingar og hópar fá aðstöðu til að vinna að frumkvöðlahugmyndum gegn sanngjarnri leigu undir faglegri umsjón sérfræðinga Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Hægt er að sækja um aðstöðu á vef Nýsköpunarmiðstöðvar, www.nmi.is. Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands segir að nú sé að losna um mikinn mannauð í íslensku atvinnulífi og mikilvægt sé að hlúa að honum og byggja upp ný atvinnutækifæri. „Íslendingar eru í eðli sínu miklir frumkvöðlar og skapandi. Fjölmargir einstaklingar hafa leitað ráða hjá okkur varðandi stofnun og rekstur nýrra sprotafyrirtækja og það er frábært að geta boðið þeim aðstöðu, stuðning og faglega aðstoð við framkvæmd viðskiptahugmyndanna og því fögnum við þessu góða samstarfi Nýja Glitnis og Nýsköpunarmiðstöðvar," segir Sigríður Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Áður hefur Nýsköpunarmiðstöð Íslands opnað Torgið - viðskiptasetur í samvinnu við Landsbankann í Pósthússtræti, sem hóf starfsemi í byrjun desember. Auk þess rekur Impra á Nýsköpunarmiðstöð frumkvöðlasetur á Keldnaholti í Reykjavík, á Höfn í Hornafirði og í Eldey á Keilissvæðinu.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira