Arðsemismat Kárahnjúka mögulega endurskoðað 29. desember 2008 07:00
Gríðarleg lækkun hefur orðið á álverði undanfarna mánuði, og kemur til greina að arðsemismat vegna Kárahnjúkavirkjunar verði endurskoðað vegna þessa. Verð á raforku til stóriðju er tengt álverði, og hefur því lækkandi álverð lægri tekjur í för með sér fyrir orkufyrirtæki. „Ég held að það sé ekki ólíklegt að arðsemismatið [á Kárahnjúkavirkjun] verði endurskoðað," segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Það hafi verið rætt, en engin ákvörðun tekin. Upphaflega var talið að arðsemi eigin fjár vegna virkjunarinnar yrði um 11,9 prósent. Þar var miðað við að heimsmarkaðsverð á áli væri að meðaltali um 1.550 dollarar á tonnið. Nú er verðið komið niður í 1.500 dollara, og hefur hrunið úr um 3.300 dollurum í júlí. Landsvirkjun endurskoðaði arðsemismatið í janúar 2008. Þá var arðsemi eigin fjár metin um 13,4 prósent. Helsta ástæðan fyrir þessari aukningu var hærra heimsmarkaðsverð á áli. „Tekjur Landsvirkjunar hafa lækkað á síðustu mánuðum ársins. Landsvirkjun er þó með varnarsamninga sem verja fyrirtækið fyrir hluta lækkunarinnar. En þetta hefur neikvæð áhrif og það segir sig sjálft að við viljum hafa álverð hærra," segir Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar. Þorsteinn segir að lægri fjármagns- og vaxtakostnaður vegi að einhverju leyti upp á móti lækkandi álverði. Landsvirkjun noti dollara sem starfrækslumynt, og því hafi lágir stýrivextir í Bandaríkjunum góð áhrif. Sveiflur á álverði eru algengar, og þarf því að áætla hvert verðið verður til lengri tíma þegar arðsemi af stórum framkvæmdum eins og Kárahnjúkavirkjun er metin, segir Þorsteinn.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Fleiri fréttir Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Sjá meira