Enski boltinn

Ég hef spilað Championship Manager alla mína ævi

Ole Gunnar finnur sig vel í þjálfarastarfinu
Ole Gunnar finnur sig vel í þjálfarastarfinu AFP

Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United finnur sig vel í þjálfarastöðunni hjá félaginu. Hann segist ekki vera í vandræðum með að stýra öðrum leikmönnum vegna reynslu sinnar af því að vinna með Alex Ferguson og því að spila tölvuleiki.

"Það er gríðarlega mikilvægt fyrir mig að læra af Alex Ferguson. Hvernig hann býr sig undir leiki og nýtir sér smáatriði til að ná forskoti á andstæðinginn," segir Solskjær m.a. á bloggi sínu á heimasíðu United.

"Ég er viss um að ég muni hafa gott af því að þjálfa varalið United og mitt hlutverk er að gera þessa stráka klára til að spila með aðalliðinu. Ef þeir eru ekki að standa sig, verð ég að gera þeim það ljóst að þeir séu ekki að bregðast mér - heldur sjálfum sér."

"Annars er það ekki erfitt fyrir mig að vera harður við þessa stráka, ég er búinn að spila Championship Manager (tölvuleikinn) alla mína ævi og þar hef ég nú sett marga leikmenn á sölulistann. En í alvöru, þá vita þessir strákar til hvers ég ætlast af þeim og svo lengi sem þeir gera það - verður þetta ekkert mál," segir Norðmaðurinn á bloggi sínu.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×