Lífið

Slagsmál á Þorláksmessutónleikum Bubba

Bubbi skakkaði leikinn ásamt fílefldum dyravörðum á Nasa.
Bubbi skakkaði leikinn ásamt fílefldum dyravörðum á Nasa.
Slagsmál brutust út undir lok árlegra Þorláksmessutónleika Bubba Morthens á skemmtistaðnum NASA á tólfta tímanum í kvöld. Á milli 10 og 15 manns tóku þátt í slagsmálunum og reyndu dyraverðir að skakka leikinn en Bubbi hélt sínu striki um stund.

Þegar ljóst varð að áflogunum myndi ekki linna stöðvaði Bubbi dagskrána og kom nokkrum vel mæltum friðarskilaboðum til áflogahundanna. Ekki er vitað til að neinn hafi meiðst í áflogunum en tónleikagestum var nokkuð brugðið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.