Lífið

Miðar á jólatónleikana fást á lögreglustöðvum

„Ég lofa því að tónleikagestir munu eiga mjög góða kvöldstund. Þetta verður auðvitað hátíðlegt en við munum flytja hefðbundin jólalög, bæði eldri og yngri, og einnig frönsk jólalög. Kórinn hefur æft vel og við hlökkum til," segir Hörður Jóhannesson, aðstoðarlögreglustjóri og formaður Lögreglukórsins.

Lögreglukórinn heldur árlega jólatónleika sína í Grafarvogskirkju sunnudaginn 16. desember klukkan 20:30. Einsöngvarar eru Anna Margrét Óskarsdóttir og Eiríkur Hreinn Helgason en stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson.Miðaverð er 1.500 kr. og má nálgast miðana við innganginn, eða á lögreglustöðvum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.