Lífið

Sköllótt, tannlaus hóra og skotheldur Maybach

Mariah Carey þarf aðstoð við að ganga frá notuðu tyggjói.
Mariah Carey þarf aðstoð við að ganga frá notuðu tyggjói.
Stjörnurnar eru margar hverjar þekktar fyrir furðulegar kröfur um aðbúnað í búningsherbergjum sínum. Algengar kröfur eru til dæmis um óhóflegt magn af dýru áfengi, blómvendi, fjölda og stærð spegla, nú eða að M&M nammið sé litaflokkað. Svo eru þeir sem vilja skera sig úr, eins og til dæmis Barbra Streisand, sem vill að rósablöð fljóti í klósettinu, eða David Hasselhof, sem lætur sér nægja skilti með mynd af sér í fullri stærð. Aðrir eru settlegri, eins og Led Zeppelin, sem biðja einungis um straujárn og straubretti.

Í bókinni The Little Red Riders Book: The Backstage Requests Of Rock 'n' Roll's Most Famous Artists, eru týnd til atriði sem vel þekktir listamenn fyrr og síðar verða að hafa baksviðs á tónleikum. Nokkur dæmi: Marilyn Manson:


Loftkælingin verður að vera á fullu. Haribo hlaup birnir. Doritos, örbylgjupopp. Flaska af Absinthe. Sköllót og tannlaus vændiskona. Mariah Carey:


Cristal Kampavín. Rör. Aðstoðarmaður til að fjarlægja og henda notuðu tyggjói. Tesett fyrir átta. Hunang. Lofthreinsibúnaður. Hvolpur. Kettlingar. Mötley Crue:


Majónes. Grey Poupon sinnep. Hnetusmjör. Þriggja metra löng kyrkislanga. Hálfsjálfvirk vélbyssa. Fundalisti hjá AA á svæðinu. Britney Spears:


Tveir kassar af Pop Tarts. Fruit Loops morgunkorn. Kapalsjónvarp. Tveir stórir sófar. Lyktarlaust teppi. Símalína. Madonna:


Ný klósettseta. 25 kassar af Kabbalah vatni. Jennifer Lopez:


Hvít blóm, kerti, dúkar, sófar og gluggatjöld. Ljósaperur með lágan vattafjölda. Kaffi sem hefur verið hrært í rangsælis. Skittles sælgæti. P Diddy:


204 handklæði. 20 sápustykki. Tvær flöskur af Hennessy koníaki. Tvær flöskur af Pinot Grigio. Tvær flöskur af Veuve Cliquot. Flaska af Dom Perignon. Grey Goose vodka. Græjur. Hvítur blómvöndur. Skotheld Maybach bifreið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.