Lífið

Kærleiksbirnir leika lausum hala á Patreksfirði

Blöðrurnar nutu sín vel á brunahana bæjarins.
Blöðrurnar nutu sín vel á brunahana bæjarins. MYND/Bríet Arnardóttir
Þegar Patreksfirðingar vöknuðu í morgun biðu þeirra hlýleg orð og ósk um góðan dag sem höfðu verið hengd á hurðir og glugga fyrirtækja og stofnana í bænum. Óþekktir kærleiksbirnir leika lausum hala í bænum og er þetta í þriðja sinn sem þeir láta að sér kveða.

Fyrir rúmum tveimur mánuðum hófu kærleiksbirnirnir aðgerðirnar. Á vef Vesturbyggðar þann sautjánda september greindi frá því að bæjarbúar hefðu flestir fundið litla miða á undir rúðuþurrkunum á bílum sínum um morguninn. Á miðana voru prentuð falleg orð um lífið og mynd af rauðu hjarta. Rúmum mánuði síðar voru þeir aftur á ferð og búnir að færa sig upp á skaftið. 29. október vöknuðu bæjarbúar við það að birnirnir höfðu fest hjartalaga blöðrur á víð og dreif um Aðalstræti. Bæjarstarfsmenn vitorðsmenn kærleiksbjarna?
Hjartablöðrurnar blakta fyrir utan sýslumannsembættið á PatreksfirðiMYND/Bríet Arnardóttir

Fæstir vita hverjir standa fyrir góðverkunum, en vitað er að þeir eru fleiri en einn. Bríet Arnardóttir hjá Vesturbyggð segir að sögusagnir hafi gengið um hver kærleiksbjörninn væri, en þegar miðarnir fundust í morgun var sá aðili ekki í bænum.

Þrátt fyrir að velgjörðamennirnir vinni verk sín í skjóli nætur hefur sést til þeirra við iðju sína. Þegar Bríet er spurð hvort hún viti þá ekki hverjir Patreksfirðingarnir kærleiksríku séu vill hún sem minnst um málið segja. ,,Það er óþarfi að alþjóð viti það. Þetta er miklu skemmtilegra svona" segir hún leyndardómsfull. ,,Maður er bara orðinn vitorðsmaður!" bætir hún hlæjandi við að lokum, og beinir þeim tilmælum eindregið til bjarnanna að halda góðverkum sínum áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.