Lífið

Nicole Richie á von á áramótadreng

Söngvarinn Lionel Richie hefur staðfest að dóttir hans Nicole eigi von á dreng. ,, Hún er meira að segja byrjuð að velja nafn" sagði pabbinn stoltur. Sjálfskipaðir sérfræðingar Vestanhafs voru búnir að giska á þetta fyrir nokkru. Vel rúnnuð og há kúla Nicole þótti benda til þess að barnið væri karlkyns. Þegar allir vinir Nicole færðu henni svo bláar barnagjafir þótti kynið nokkuð vel staðfest.

Drengurinn á að fæðast á gamlárskvöld. Hann verður fyrsta barn Nicole, og kærasta hennar Joel Madden.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.