Vill síður vera borinn berrassaður út úr Kringlunni 22. nóvember 2007 11:03 Gillz lofar að vera vel snyrtur í hlaupinu. MYND/Fréttablaðið
Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger, ætlar næstkomandi Þorláksmessu að standa við gefin loforð og hlaupa nakinn í gegnum Kringluna. ,,Jújú, ég fer þarna í gegn berrassaður á öðru hundraðinu" sagði Gillz þegar Vísir heyrði í honum. Tímasetningin á sínar skýringar. ,,Ég vil gera þetta þegar sem flestir eru í Kringlunni " segir Gillzenegger, sem segist með þessu í raun vera að gera góðverk. ,, Það er mikið stress í fólki á þessum tíma, þetta lífgar kannski upp á daginn." Gillz hefur örlitlar áhyggjur af lögfræðihlið málsins, enda er það almennt ekki vel séð að menn séu berrassaðir í Kringlunni. ,,Ég þarf að ræða þetta við lögfræðinginn minn." segir Gillz. ,,Vil síður láta handjárna mig og bera mig berrassaðan út úr Kringlunni" Nektin flokkast lagalega undir ósæmilega hegðun á almannafæri. Hjá Lögreglunni í Reykjavík fengust þær upplýsingar að nakið fólk á almannafæri væri undantekningarlaust fjarlægt ef lögregla hefði á annað borð hendur í hári þeirra.Kringlan er ekki auðveld yfirferðar á Þorláksmessu, jafnvel þó fólk ætli sér einungis að rölta í gegnum hana í hægðum sínum. Gillz segist ekki óttast að mannflaumurinn hægi á honum. Vissulega gæti þetta orðið vandamál, en hann sé þó bæði fimur og snöggur. ,,Ég hleyp hundraðið á ellefu komma einni, ég held ég eigi ekkert í vandræðum með að smeygja mér á milli fólks" Forsaga málsins er sú að Gillzenegger skrifaði á blogginu sínu að ef Garðar Örn Hinriksson knattspyrnudómari, sem Gillz vill meina að hafi horn í síðu Breiðabliks, dæmdi liðinu víti myndi hann hlaupa nakinn í gegnum Kringluna. Daginn eftir dæmdi Garðar Breiðabliki einmitt víti. Þetta finnst Gillz einkennileg tilviljun en stendur þó við stóru orðin. ,,Ég væri til í að hlaupa þetta með honum." segir Gillz. Bara við tveir félagarnir að skokka gegnum kringluna."
Mest lesið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Lífið Fleiri fréttir „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Sjá meira