Lífið

Luxor sjá í rassinn á Páli Óskari

MYND/tónlist.is
Söngsveitin Luxor kemur inná TÓNlistann með látum þessa viku en listinn er sölulisti yfir hljómplötusölu sem tekinn er saman af sambandi hljómplötuframleiðenda. Listinn er kynntur alla fimmtudaga í Morgunblaðinu.

Ofar á listanum sitja Páll Óskar og dúettinn Friðrik Ómar og Guðrún Gunnars ásamt safnplötunni 100 Barnalög. Aðeins munaði um það bil 20 eintökum á 4. og 2. sæti og því ljóst að baráttann um mest seldur plötur jólanna er formlega hafinn og ætla Luxor drengirnir ekkert að gefa eftir enda með auðveldan aðgang að öllum trixunum í bókinni.

"Við erum mjög ánægðir með þennan árangur og reyndar alveg með ólíkindum að fara svona vel af stað. Fréttablaðið reyndi eitthvað að gera lítið úr okkur í dómum um daginn en auðvitað er það áheyrendur sem ákveða það á endanum hvað þeim líkar við. Við höfum lagt okkur alla fram við að gera góða plötu og við erum þakklátir því hvað okkur er vel tekið. Við gerðum þessa plötu ekki fyrir gagnrýnendur heldur hlustendur"

sagði Arnar Jónsson einn af drengjunum "Það er bara ótrúlegt að vera þarna á listanum það er stutt í fyrsta sætið, það má segja að við sjáum í rassinn á Palla þaðan" sagði Arnar að lokum hlæjandi.

Ekkert var til sparað við upptökur plötunnar. Þorvaldur Bjarni stjórnaði upptökum ásamt Vigni Snæ Vigfússyni. Það er Sinfóníuhljómsveit Búlgaríu sem leikur með en útsetningar fyrir hljómsveitina voru í höndum Þorvaldar Bjarna sem stjórnaði einnig sveitinni við upptökurnar. Kristjana Stefánsdóttir og Þorvaldur Bjarni útsettu söng strákanna en Kristjana hefur verið raddþjálfari þeirra frá fyrsta degi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.