Lífið

Páll Óskar ánægður með uppskeruna

,,Ég bara hoppaði hæð mína í loft upp af gleði." sagði Páll Óskar Hjálmtýsson þegar Vísir náði tali af honum í dag. Hann var þá nýbúinn að frétta að nýjasta plata hans, Allt fyrir ástina, trónir nú á toppi Tónlistans. ,,Ég og allir sem komu nálægt plötunni erum í skýjunum." sagði Páll. ,,Þetta er búið að kosta mikla vinnu og mikinn undirbúning núna er uppskeran að koma í ljós og við erum öll hæstánægð með uppskeruna."

Páll þakkar góðum lögum árangurinn. ,,Lögin skipta öllu. Það getur enginn listamaður státað af gæfuríkum ferli nema hafa átt góð lög við bak við sig." ,,Frank Sinatra væri ekki Frank Sinatra án New York New York. Eða Madonna án Lika a Virgin. Lögin eru upphafið og endirinn. Páll er lagahöfununum sem unnu með honum að plötunni þakklátur. ,,Þeir úðuðu í mig fyrsta flokks popplögum."

Þá segir Páll að árangurinn sé ekki síst að þakka því að bandið hafi náð því í stúdíóinu að njóta þess að skapa list án þess að hafa áhyggjur af útkomunni. ,,Einmitt þegar maður er þjakaður af fullkomnunaráráttu þá verða lögin hvorki fugl né fiskur. Þegar maður nær að sleppa tökunum og njóta þess að skapa þá gerast kraftaverkin"

Svona sterk viðbrögð segist Páll ekki hafa fengið við neinu sem hann hefur gert. Platan virðist höfða til breiðs aldurshóps, en Páll hefur fengið hrós frá öllum frá konum á besta aldri niður í tveggja ára börn sem kunna textann við Allt fyrir ástina utan að. Svona velgengni er ekkert sjálfgefin. Ég er þakklátur og hrærður." sagði Páll.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.