Bankastjóri og leikkona á meðal framúrskarandi ungra Íslendinga Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. nóvember 2007 15:36 Það var föngulegur hópur sem tók við verðlaununum. Birkir og Garðar Thor áttu ekki heimangengt.
Junior Chamber Íslandi heiðraði fjóra unga Íslendinga fyrir framúrskarandi störf og árangur í móttöku í Norræna húsinu í gær. Það voru þau Sólveig Arnarsdóttir og Garðar Thor Cortes söngvari, sem hlutu verðlaunin „Framúrskarandi ungir Íslendingar" fyrir störf á sviði menningar og lista, Bjarni Ármannsson, fékk verðlaunin fyrir framúrskarandi störf á svið viðskipta og Birkir Rúnar Gunnarsson, fékk verðlaunin fyrir einstaklingssigra og afrek. Sólveig var hæstánægð með verðlaunin þegar Vísir sló á þráðinn til hennar. Hún sagðist hafa verið í mjög góðum hópi. „Þetta var þrælfínt, en ég held að Garðar Cortes (eldri) sé best að þessum verðlaunum kominn. Hann mætti þarna til að taka við verðlaunum fyrir hönd sonar síns og ég minntist á það að hann ætti bara að halda þeim sjálfur. Hann er auðvitað síungur maðurinn," segir Sólveig, sem er á kafi í vinnu þessa dagana. „Ég er rétt nýkomin til landsins eftir að hafa verið með þrjár myndir úti og verið í leikhúsi í Berlín," segir Sólveig. Hún verður hérna heima næstu dagana og mun taka þátt í uppfærslu á Engissprettunum í Þjóðleikhúsinu. Verðlaunin „Framúrskarandi ungir Íslendingar" eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks á aldrinum 18 - 40 ára sem er að takast á við krefjandi verkefni og starfar að athyglisverðum verkefnum. Um er að ræða alþjóðlega viðurkenningu sem gefin er á hverju ári til tíu framúrskarandi einstaklinga í heiminum. En aðildarlönd JC senda inn umsóknir og yfirlit um sitt fólk og af þeim eru síðan 10 valdir og þeir heiðraðir á heimsþingi JCI ár hvert.
Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Gagnrýni Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Í kossaflensi á listasýningu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira