Barnaheill heiðra kvikmyndalandsliðið Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. nóvember 2007 13:36 Bergsteinn fékk viðurkenningu Barnaheilla fyrir Syndir feðranna.
Segja má að Barnaheill hafi heiðrað landslið kvikmyndagerðamanna í dag. Þau Guðný Halldórsdóttir, leikstjóri Veðramóta, Ragnar Bragason, leikstjóri Foreldra, og Bergsteinn Björgúlfsson og Ari Alexander Ergils Magnússon, leikstjórar Synda feðranna, hlutu öll árlega viðurkenningu Barnaheilla. Samtökin veita viðurkenningu til einstaklinga eða stofnana fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra. Að mati Barnaheilla taka allar þessar kvikmyndir á viðkvæmum málum sem snerta börn, réttindi þeirra og aðbúnað. Þær vekja upp áleitnar spurningar um samfélag okkar fyrr og nú og varpa ljósi á afleitar aðstæður barna stundum og áhrifin sem ofbeldi hefur á líf þeirra. „Þetta er mikill heiður. Það er óneitanlega ánægjulegt eftir þennan mikla tíma sem hefur verið lögð í þessa mynd að einhver skuli veita manni viðurkenningu. Eins og flestir vita er heimildarmyndagerð eitthvað dýrasta hobbý sem hægt er að taka sér fyrir hendur," segir Bergsteinn Björgúlfsson, leikstjóri Synda feðranna. Bergsteinn segir erfitt að segja til um hvaða þýðingu þessi viðurkenning barnaheilla hafi fyrir mynd sína. „Ég vona að þetta fái fólk til þess að langa til að sjá myndina vegna þess að þetta er svona efni sem sumum finnst erfitt að horfa á og pæla í. En ég held að allir ættu að sjá þessa mynd. Ég held að það sé ekrkert nema mannbætandi. Þetta er svo stór hluti af okkar samtímasögu sem er búin að vera í kyrrþey lengi," segir Bergsteinn. Guðný Halldórsdóttir, leikstjóri Veðramóta, segist einnig vera mjög ánægð með viðurkenningu Barnaheilla. „Þetta sýnir bara að myndin á erindi við almenning." Hún segir að allt gott umtal komi myndinni til góða í markaðssetningu. Viðurkenning Barnaheilla er veitt á afmælisdegi Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem er í dag, þann 20. nóvember. Þennan dag árið 1989 var sáttmálinn samþykktur á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Foreldrar, Syndir feðranna og Veðramót hlutu allar Edduverðlaun fyrir skemmstu.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Fleiri fréttir Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Sjá meira