Lífið

Allar myndirnar úr brúðkaupi aldarinnar

Andri Ólafsson skrifar
Ingibjörg við komuna í kirkjuna.
Ingibjörg við komuna í kirkjuna.
Vísir var á staðnum þegar tvær af ríkustu fjölskyldum landsins tengdust saman í gær.

Jón Ásgeir Jóhannesson, sonur Jóhannesar í Bónus og Ingibjörg Pálmadóttir, dóttir Pálma í Hagkaupi, giftu sig í Fríkirkjunni. 

Brúðkaupið fór fram í Fríkirkjunni og hófst athöfnin klukkan 17.30. Það var séra Hjörtur Magni sem gaf skötuhjúin saman og sameinaði þannig Bónus- og Hagkaupsfjölskyldurnar í heilögu hjónabandi. Í úttekt sem tímaritið Sirkus gerði í sumar voru hreinar eignir Jóns Ásgeir metnar á 105 milljarða króna. Ingibjörg var í sömu úttekt metin á 30 milljarða og saman eru þau hjón því um 135 milljarða króna virði. 

Fjöldi fólks var viðstatt athöfnina og var Fríkirkjan orðin troðfull um klukkan fimm í dag. Þar mátti sjá Björgólf Guðmundsson og fleiri.

Brúðhjónin óku svo frá kirkjunni í veisluna í Rolls Roys bifreið Jóns Ásgeirs sem hann lét flytja sérstaklega til landsins frá Englandi í tilefni dagsins.

Um 300 manns var boðið í veisluna sem haldin er í Hafnarhúsinu. Búið er að reisa nokkurs konar viðbyggingu svo það væsi ekki um gestina.

Árni Páll Árnason þingmaður ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Eyjólfsdóttur
Bjarni Ármansson ásmat eiginkonu sinni, Helgu Sverrisdóttur, formanni stjórnar Hjallastefnunar.
Björgólfur Guðmundsson og Þóra Hallgrímsson
Jón Ásgeir og Ingibjörg geisluðu af hamingju að athöfn lokinni.
Daníel Ágúst Haraldsson söngvari. Hann kom fram með GusGus og NýDönsk í veislunni síðar um kvöldið.
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff
Jóhannes Jónsson í Bónus var svaramaður sonar síns í brúðkaupinu.
Guðrún Tinna Ólafsdóttir og Karl Pétur Jónsson
Stefán Hilmarsson endurskoðandi og Friðrika Hjördís Geirsdóttir
Brúðurin ljómaði að athöfn lokinni.
Gabríela Friðriksdóttir myndlistamaður ásamt vinkonu sinni.
Hannes Smárason og eiginkona hans, Unnur Sigurðardóttir.
Hjörtur Magni fríkirkjuprestur gaf brúðhjónin saman.
Jóhannes í Bónus var augljóslega stoltur á brúðkaupsdegi sonar síns.
Jón Óskar og Hulda Hákon myndlistafólk
Það var ansi kalt á brúðkaupsdeginum en Jón Ásgeir lét það ekki á sig fá.
Lárus Welding forstjóri Glitnis ásamt eiginkonu sinni.
Ögmundur Jónasson þingmaður
Fjölmargir ljósmyndarar biðu eftir brúðhjónunum fyrir utan Fríkirkjuna.
Ragnhildur Gísladóttir og Birkir Kristinsson
Jón Ásgeir lét flytja inn Rolls Royce bifreið sína frá Bretlandi sérstaklega fyrir brúðkaupið.
Magnús Scheving og Ragnheiður Pétursdóttir Melsted





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.