Lífið

Boy George hlekkjar fylgdarsvein við svefnherbergisvegg

Boy George sinnir samfélagslegum skyldum í New York í fyrra.
Boy George sinnir samfélagslegum skyldum í New York í fyrra. MYND/Getty
Eitíspopparinn og förðunarsérfræðingurinn Boy George hefur verið kærður fyrir fyrir að hafa hlekkja fylgdarsvein við vegg í íbúð sinni. Söngvaranum litríka var sleppt gegn tryggingu, og skipað að mæta fyrir rétt í næstu viku.

Scotland Yard staðfesti við Mirror dagblaðið að George hefði verið kærður fyrir að halda 28 ára manni nauðugum viljugum í íbúð sinni í við Ravey Street í Austur-London þann 28. apríl.

George er ekkert óvanur lögreglumálum. Hann var dæmdur til samfélagsþjónustu við að sópa götur New York í fyrra, eftir að hafa viðurkennt að hafa logið til um innbrot á heimili sitt í Manhattan. Lögregla hafði fundið kókaín á heimilinu, og popparinn ákvað að skella skuldinni á ímyndaðan innbrotsþjóf.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.