Lífið

Paul McCartney: Kallaði Heather Mills einfætta tík

Paul McCartney.
Paul McCartney. MYND/Getty

Heather Mills segir að Bítillinn Paul McCartney hafi komið illa fram við sig þegar þau voru gift. Segist hún hafa undir höndum upptökur þar sem Paul kallar hana ýmsum miður fallegum nöfnun þar á meðal einfætta tík.

Heather segist hafa undir höndum margar upptökur sem varpa eiga ljósi á þann mann sem Paul McCartney hafi að geyma. Að sögn vina Heathers er hún sár og reið yfir þeirri fjölmiðlaumfjöllun sem hún fékk í kjölfar skilnaðarins. Með upptökunum vill hún sýna fram á að það hafi ekki verið hennar sök að hjónabandið leystist upp.

Meðal þess sem upptökurnar hafa að geyma er þegar Paul McCartney segir við Heather að hann voni að hún missi líka hinn fótlegginn. Heather missti fótlegg þegar hún lenti í bílslysi fyrir mörgum árum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.