Kiri Te Kanawa og Garðar Cortes syngja á styrktartónleikum fyrir BUGL 9. nóvember 2007 17:05 MYND/Getty
Kiri Te Kanawa og Garðar Thór Cortes koma fram á styrktartóleikum fyrir verkefnið ,,Lífið kallar!" sem Sinfóníuhljómsveit Íslands og FL Group standa fyrir í Háskólabíói föstudaginn 7. desember næstkomandi. Kiri Te Kanawa er einhver dáðasta söngkona heims. Kiri hefur sungið við öll helstu óperuhús veraldar og á öllum helstu tónlistarhátíðum heims. Þá hefur hún sungið inn á fjölda hljómplatna og söng meðal annars í brúðkaupi Díönu prinsessu og Karls bretaprins. Hún var öðluð af bresku krúnunni árið 1982. Hún er Íslendingum að góðu kunn. Hún hefur verið tíður gestur á Íslandi frá árinu 2002, en hún kemur meðal annars hingað til að veiða. Íslendingar hafa fengið að njóta hæfileika hennar á margan hátt, en hún hefur meðal annars haldið einkanámskeið fyrir nemendur söngskólans í Reykjavík, án þess að þiggja krónu fyrir. Garðar Thór Cortes er bjartasta von Íslendinga á tónlistarsviðinu. Hann gaf út hljómplötu sína Cortes í Bretlandi í vor og fór hún beint í fyrsta sæti Klassíska sölulistans og sat þar í þrjár vikur. Þessa dagana er verið að semja um útgáfu um allan heim og Garðar fer um heiminn þveran og endilangan til að koma fram á tónleikum. Eftir tónleikana 7. desember heldur Garðar til Bretlands og syngur við sjósetningu skipsins Queen Victoria að viðstaddri m.a. bresku konungsfjölskyldunni. Þetta er í annað skipti sem Garðar og Kiri Te Kanawa syngja saman en þau sungu saman í haust á Jersey eyjunni milli Frakklands og Englands. Tónleikarnir voru liður í fjáröflun sjóðs sem er í nafni Kiri og styrkir ungt tónlistarfólk til náms. Lífið kallar! er samstarfsverkefni fjárfestingafélagsins FL Group og BUGL, barna- og unglingageðdeildar Landsspítalans. Verkefnið er til stuðnings við bráðaþjónustu BUGL og miðar að því að styrkja börn og unglinga á aldrinum 12-18 ára sem hafa orðið fyrir áfalli og í kjölfarið misst lífslöngunina, til að móta nýja lífssögu, sögu um lífið sem kallar. Verkefnið er nú ársgamalt og er árángur framar vonum. FL Group hefur frá árinu 2006 verið aðal styrktaraðili verkefnisins og hefur beinn fjárstuðningur félagsins numið að minnsta kosti fimm milljónum króna á ári síðastliðin fjögur ár. FL Group er jafnframt aðal styrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Allur ágóði tónleikanna rennur til verkefnisins Lífið kallar! en FL Group stendur straum af kostnaði við tónleikahaldið. Miðasalan hefst á mánudaginn 12. nóvember kl. 12.00 á www.sinfonia.is, www.midi.is og í síma 545 2500. Miðaverð er 8.900 kr.
Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Í kossaflensi á listasýningu Lífið Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira