Lífið

,,I'll be back" er lífseigasta línan

,,I'll be back" er mest notaða tilvitnunin í bíómynd, sé eitthvað að marka könnun vefsvæðisins myfilms.com. Línuna ódauðlegu sagði Arnold Schwarzenegger, núverandi ríkisstjóri Kaliforníu, í titilhlutverki sínu í Terminator, rétt áður en hann keyrði bíl sínum gegnum vegg lögreglustöðvar.

Fast á hæla hennar kemur síðasta setning Rhetts Butler í ,,Á hverfanda hveli" - ,,Frankly, my dear, I don't give a damn". Í þriðja sæti var svo ,,Beam me up, Scotty" úr Star Trek, þó hún hafi ekki verið sögð í einum einasta þætti um geimskipið.

Um tvöþúsund manns svöruðu könnun Myfilms.com um það hvaða setningar úr bíómyndum fólk notaði mest í daglegu lífi. ,,May the force be with you" úr Star Trek var vinsæl á þeim vettvangi, eða í fjórða sæti, og hin óþolandi ofnotaði ,,Life is like a box of chocolates" úr Forrest Gump í því fimmta.

,,Rannsóknir okkar benda til að kvikmyndir hafi gríðarmikil áhrif á fólk. Þær geta breytt öllu frá því hvernig fólk lifir lífinu, til þess hvernig það talar" sagði talsmaður myfilms.com, sem er síða á vegum Kvikmyndamiðstöðvar Bretlands, við Sun dagblaðið.

Karlkyns sögupersónur sögðu áttu allar tíu vinsælustu línurnar. Rannsóknin sýndi einnig að Dirty Dancing var sú kvikmynd sem konur hefðu helst viljað leika í, en Pretty Woman og Gone With The Wind voru einnig vinsælar. Karlmenn vildu hinsvegar helst hafa leikið í Bond myndum, Star Wars, eða Lord of the Rings.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.