Lífið

Nafnlausa hljómsveit með valkvíða vantar aðstoð

MYND/Getty





Ný íslensk hljómsveit, sem illa er haldin af valkvíða, hefur ákveðið að leita til Íslendinga vegna vals á nafni hljómsveitarinnar. Sett hefur verið upp netkosning þar sem Íslendingar hafa möguleika á því að kjósa úr nokkrum valmöguleikum eða koma með sínar eigin hugmyndir. Meðal nafna sem hægt er að velja úr eru bensín, Safír , Fólk er fífl, Allt frekar fyrirsjáanlegt, Dísill og Blöndungur.

,,Mér líst sjálfum ágætlega á ,,Dísill". ,,,Allt frekar fyrirsjáanlegt" er líka þjálft nafn og sniðugt." segir Magnús Ingi Sveinbjörnsson, betur þekktur sem Maggi trymbill, trommari sveitarinnar.

Ekki var nema rúmur klukkutími liðinn af kosningunni þegar Vísir hafði samband við sveitarmeðlimi en þegar höfðu borist rúm 20 atkvæði. Dísill hafði þar nokkra forystu. Maggi segir að kosningunni ljúki þegar eitt nafn hefur náð afgerandi forystu, en líklega ekki seinna en fyrir jól. Bandið mun svo byrja að spila í janúar.

Hljómsveitið verður ballhljómsveit og mun róa á svipuð mið og Í svörtum fötum og Írafár. Stefnan er tekin á smærri staði og sveitaböll úti á landi. Aðspurður hvort bandið muni hegða sér ófriðlega að hætti rokkstjarna segir Maggi svo vera. ,,Jújú. Það verður allavega einhverju fleygt út um gluggann."

Maggi segir tónlistina ekki verða aðalstarf sveitarmeðlima fyrst um sinn. ,,Þetta verður ekki að aðalstarfi fyrr en heimsfrægð er náð. Þú lifir ekkert á tónlist á Íslandi nema þú heitir Bubbi", sagði trymbillinn að lokum.

Netkosninguna er að finna á trymbill.is/hljomsveit .






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.