Uppselt á átján sýningar Ökutíma fyrir frumsýningu 2. nóvember 2007 12:19 Þröstur Leo Gunnarsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir í hlutverkum sýnum í Ökutímum. MYND/LA
Verðlaunaverkið Ökutímar eftir Paulu Vogel verður frumsýnt í kvöld hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikritið hefur farið sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Meðal annars hlaut það hin virtu Pulitzer-verðlaun þegar það var frumsýnt í Bandaríkjunum fyrir sjö árum. Ekki virðast Íslendingar ætla að taka verkinu illa, en þegar er uppselt á átján sýningar verksins. Ökutímar er margslungið leikrit sem segir þroskasögu ungrar stúlku, Lillu. Fjölskylda hennar er allt annað en venjuleg. Mamma og amma keppast við að leggja henni lífsreglurnar. En er Peck bara góður frændi þegar hann býðst til að kenna henni á bíl? Ökutímar er áleitið leikrit sem fjallar um svik, ást og fyrirgefningu og tekur á viðkvæmu máli á óvenjulegan hátt. Höfundur fjallar hér um kynferðislega misnotkun en nálgunin er óvænt. Hér er á ferðinni þroska- og fjölskyldusaga sem fær áhorfendur til að súpa hveljur en er þó drifin áfram af heillandi húmor. Paula Vogel lýsti verkinu sjálf sem óði til sögunnar um Lólítu en í tilfelli Ökutíma væri sagan sögð frá sjónarhorni stúlkunnar sjálfrar. Glæsilegur hópur listamanna tekur þátt í uppsetningu LA á verkinu en meðal þeirra eru tónlistarkonan Lay Low en hún semur tónlist fyrir uppsetninguna og flytur í sýningunni. Lay Low er á sviðinu allan tímann og flytur frumsamin lög fyrir sýninguna. en einnig hljóma lög sem Lay Low hefur tekið upp með hljómsveit sinni og eru úr smiðju Dolly Parton. Nýtt lag eftir Lay Low, SAMAN, er farið í spilun á öldum ljósvakans. Með aðalhlutverk fara leikarinn góðkunni Þröstur Leo Gunnarsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir en hún er nýútskrifuð leikkona og nýkomin á fastan samning hjá LA. Aðrir leikarar eru Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Þýðingu sér Sigtryggur Magnason um, María Reyndal leikstýrir, leikmynd og búningar eru í höndum Filippíu Elísdóttur, og lýsingu sér Björn Bergsteinn Guðmundsson um. Verið er sýnt í Rýminu, en það er samstarfsverkefni LA og TM.
Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Gagnrýni Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Í kossaflensi á listasýningu Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira