Banki borgar bloggurum 23. maí 2007 10:00 Þórmundur Bergsson. Þetta er tilraunaverkefni og til stendur að bæta í hópinn. Þannig er til dæmis femínistinn Sóley Tómasdóttir á listanum. „
Ég ætla að reyna að kaupa birtingu hjá einum til tveimur í viðbót. Allt er þetta fólk sem kemur oft fyrir á lista yfir vinsæla bloggara," segir Þórmundur Bergsson hjá Media Com - birtingaraðila Byrs banka. Byr hefur gripið til þeirrar nýstárlegu aðferðar að kaupa birtingu auglýsinga sinna hjá völdum bloggurum. Þeir fjórir sem þegar hafa verið valdir eru Óli Björn Kárason, Ellý Ármanns, Guðmundur Steingrímsson og Pétur Gunnarsson. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fá þeir greitt í kringum fimmtíu þúsund krónur á mánuði en allt er það þó háð samningum milli bankans og bloggaranna hvers um sig. Byr sparisjóður lógó logo merki auðkenni SPH SPV Þórmundur, sem stjórnar þessu verkefni, segir að til standi að fá tvo til þrjá bloggara til viðbótar í þennan hóp en um tilraunaverkefni er að ræða. „Ég hef til dæmis ekki náð í Sóleyju Tómasdóttur. Hún er klárlega á listanum. Það skiptir okkur engu máli hvort bloggarinn er framsóknarmaður, sjálfstæðismaður, karl eða kona, við erum ekki að þessu eftir slíkum línum," segir Þórmundur aðspurður hvort bankinn sé með vali sínu að reyna að ná um hið pólitíska svið. Eingöngu er um að ræða þá sem hýsa bloggsíður sínar hjá mbl.is. Ástæðan er einkum sú að mbl.is vísar ekki auglýsingum inn á síður bloggara sinna og gengur út frá því að bloggsíður þeirra séu eign bloggaranna. Hins vegar mun því svo háttað, til dæmis á Vísi.is, að þar er auglýsingum veitt inn á síður bloggaranna og hafa þeir ekkert um það að segja. Fimmtíu þúsund á mánuði renna í vasa þessara eðalbloggara sem Byr hefur valið vegna vinsælda þeirra og umbúðalausra skoðana. Trausti Haraldsson, markaðsstjóri hjá Byr, segir bankann rétt að byrja. Byr sjái sér hag í því að vera inni á mbl.is en þar sé eldri markhópur, meiri ímynd og gæði. „Þarna fara almennt inn 130 þúsund á viku." Trausti bindur við það vonir að þetta styrki bloggheima. Skrif margra virðist full vinna og bankinn vill með þessu vekja athygli á persónulegri þjónustu sinni. „Þetta er nýr vinkill sem fólk skoðar. Vandamálið með hefðbundna miðla er að þar er reynt er að hafa allt hlutlaust. Fólk hefur gaman af umbúðalausum skoðunum." Guðmundur Steingrímsson Þórmundur segir sig hafa langað að vera inni hjá topp fimm til sjö bloggurum og sjá hvað gerist. „Ellý til dæmis, einn mest lesni bloggarinn, henni fannst þetta frekar skemmtilegt og er allt í einu farin að hafa tekjur af pistlum sínum. Ekkert ósvipað og menn fá greitt fyrir pistla í Fréttablaðinu." Guðmundur Steingrímsson, einn þeirra útvöldu, segir enga skilmála í samningum. „Þeir vildu auglýsa á heimasíðu minni og það er velkomið. Eins og auglýsendur eru almennt ekki að kaupa fjölmiðla þó þeir auglýsi í þeim. Þetta er hins vegar stór áfangi í sögu þessa miðils: gummisteingrims.blog.is," segir Guðmundur Steingrímsson.
Mest lesið Ósérhlífinn starfsmaður bjargaði ómvölum frá endurvinnslu Lífið Níu ára toppaði Hvannadalshnjúk og renndi sér niður Lífið Frumsýning á Cannes og gullhamrar Bill Murray: „Nú er ég búin að toppa mig algjörlega“ Lífið Á spítala eftir samfarir við 583 menn Lífið Var hent í ljónagryfjuna þegar hann fór inn á Vog Lífið Hjálmar með upplyftandi morgunkveðju Lífið Rúrik fellur í skuggann á kynþokkafullum Jóni Lífið Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Lífið samstarf Einhleypan: Tískuelskandi lögfræðingur með sterka réttlætiskennd Makamál Kim „loksins“ útskrifuð Lífið Fleiri fréttir „Erum við að reyna fá fólk til þess að vera svikara“ Á spítala eftir samfarir við 583 menn Hjálmar með upplyftandi morgunkveðju Níu ára toppaði Hvannadalshnjúk og renndi sér niður Ósérhlífinn starfsmaður bjargaði ómvölum frá endurvinnslu Kim „loksins“ útskrifuð Frumsýning á Cannes og gullhamrar Bill Murray: „Nú er ég búin að toppa mig algjörlega“ Sigurvegarinn vill banna Ísrael Tilkynna um 29 ný atriði á Iceland Airwaves Rúrik fellur í skuggann á kynþokkafullum Jóni Var hent í ljónagryfjuna þegar hann fór inn á Vog Color Run flytur úr Laugardal og í Kópavog Dunda dömurnar fögnuðu í bongó blíðu Baltasar Kormákur og Ólafur Jóhann saman í Þjóðleikhúsinu Dulúðug hvít andlit: „Nú horfi ég á þetta allt öðruvísi“ Keyptu glæsihús Atlanta-hjónanna á undirverði Eggert Gunnþór og Elsa selja einbýlið Eitt fallegasta hús Reykjavíkur komið á sölu Sagði að hún kæmist aldrei á forsíðu Vogue Bakslag í veikindi Valgeirs Staðalímyndir í sjávarútvegi: „Hvar er maðurinn þinn?“ Landsliðshetjur elta drauminn til Ólafsvíkur Úr klikkaðri kynlífsþrá í alls enga Rikki G og Valdís eiga von á barni „Hélt að við værum að trufla verðandi bónorð hjá öðrum“ Vill Ísrael og Úkraínu úr Eurovision Stóra stundin hjá þeim Rebekku og Ásgeiri Hersir og Rósa greina frá kyninu „Allt annað að sjá einhvern sem var eins og ég“ „Ekki ætlunin að særa heldur hrista aðeins upp í umræðunni“ Sjá meira