Lífið

Laugardalshöll að springa utan af Bo

Björgvin er greinilega ennþá kóngurinn.
Björgvin er greinilega ennþá kóngurinn. MYND/Concert
,,Þetta er bara ótrúlegt. Við bjuggumst alls ekki við þessu." sagði Ísleifur B. Þórhallsson hjá Concert. MasterCard forsala á tvenna aukatónleika Björgvins Halldórssonar, Jólagestir Björgvins , hófst með miklum látum klukkan 10:00 í morgun þegar fimmtán hundruð miðar ruku út. ,,Talan yfir miða í boði fór úr 1500 niður í núll nær samstundis þegar við opnuðum fyrir sölu. Það tekur kerfið svo smá tíma að vinna úr pöntununum, en fimm mínútum síðar voru allir miðarnir farnir." sagði Ísleifur.

Töluvert færri komust að en vildu en á morgun, fimmtudag, kl. 10:00 hefst almenn sala á báða aukatónleikana. Ísleifur segir að miðað við viðbrögðin í morgun megi búast við því að slegist verði um miðana.

Miðar á fyrstu tónleikana seldust upp á hálftíma, og því ljóst að Íslendingar eru meira en lítið hrifnir af Bo. Eftir að uppselt var á þá tónleika rigndi fyrirspurnum yfir Concert menn og því ákvaðu þeir skipuleggja strax tvenna aukatónleika.

Aðspurður hvort íslendingar séu ekki hreinlega eitthvað ruglaðir, segir Ísleifur svo ekki vera. ,,Neinei, þeir hafa bara vona gaman af jólunum, og þeir elska Björgvin Halldórsson." ,,Það eru bara Björgvin og leikfangabúðir sem trylla Íslendinga þessa dagana." segir Ísleifur og hlær.

Tónleikarnir eru haldnir í Laugardalshöll. Verði uppselt á aukatónleikana, eins og allt útlit er fyrir, verða því rétt tæplega níu þúsund manns sem berja Bo augum í Höllinni þessi jól. Ísleifur segir það vera Íslandsmet að selja níu þúsund miða á íslenskan listamann. Og ekki minna afrek í ljósi þess að þetta er annað árið í röð sem Bo fyllir þrjár Laugardalshallir.

,,Höllin er að springa utan af Björgvini Halldórssyni, við þurfum bara þrefalda höll fyrir kallinn." segir Ísleifur, sem þvertekur fyrir að það verði bætt við fleiri aukatónleikum seljist upp á þessa. ,,Nei, það verða ekki fleiri, það er bara ekki hægt. Þetta er síðasta tækifærið"





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.