Google brúðkaup setur Karíbahafseyju á annan endann 6. desember 2007 17:11
Brúðkaup Larry Page, annars stofnanda Google er þessa dagana að setja litla Karíbahafseyju á annan endann. Skipuleggjendur eiga í stökustu vandræðum við að fljúga sexhundruð brúðkaupsgestum inn á einkaþotum og finna fyrir þá gististaði í viðeigandi gæðaflokki. Page hefur margsinnis verið kjörinn eftirsóttasti piparsveinn Bandaríkjanna, og kann það að hafa eitthvað með gríðarleg auðæfin sem Google veldið hefur aflað honum. Hann giftist kærstu sinni til eins árs, Lucy Southworth, á einkaeyju Richards Branson í Karíbahafinu, Necker Island. Southworth er 27 ára doktorsnemi í lífeðlisfræðilegri upplýsingatækni í Stanford. Ekki var hægt að koma öllum gestunum fyrir á Necker island, og því brá Page á það ráð að koma hluta gestanna fyrir á næstu eyju við hliðina, Virgin Gouda. Til þess að gestirnir gætu verið í friði tók hann sig til og bókaði upp alla gistingu á eyjunni. Heimildamenn New York Post segja að Bono, söngari U2, verði frægasti gesturinn á svæðinu. Á boðslistanum eru fleiri af lista Forbest yfir auðugustu menn Bandaríkjanna, tæknimógúlar úr kísildalnum og vinir brúðgumans úr Stanford, en þar kynntust Page og meðeigandi hans í Google, Sergey Brin, í doktorsnámi í tölvufræði. Þeim Page og Brin hefur vegnað ágætlega með fyrirtæki sitt. Síðan Google var sett á markað árið 2004 hafa hlutabréf í því hækkað um 510%. Þeir keyptu nýlega notaða Boeing 767 þotu til að snattast á í vinnunni og einkaerindum. Þá hefur Page fjárfest mikið í Tesla Motors, sem eru í óða önn að framleiða tryllitækið umhverfisvæna Tesla Roadster, rafmagnsbíl sem kemst 400 kílómetra á hleðslunni og fer úr núll í hundrað á fjórum sekúndum.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Sjá meira