Bjóst við að fara af stað á Eddunni Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 12. nóvember 2007 10:25 Frá afhendingu verðlauna fyrir Handrit ársins í gærkvöldi. MYND/Daníel R.
Það fór ekki framhjá þeim sem fylgdust með Edduverðlaununum í gærkvöldi að leikkona ársins, Nanna Kristín Magnúsdóttir, er með barni. Nanna er komin 38 vikur og segist hafa búist við að fara af stað á meðan verðlaununum stæði, en svo hafi þó ekki orðið. „Ég var svo innilega glöð í hjarta mínu að fá verðlaunin, þetta var yndisleg tilfinning," segir Nanna. Hún bætir við að það hljóti að hafa verið erfitt fyrir valnefndir að velja í flokkinn, því frammistaða margra annarra leikkvenna hafi verið frábær. Nanna Kristín segist hafa ákveðið að fara alla leið þegar hún keypti kjól eftir Dolce Gabbana hjá Sævari Karli. „Það er ekki oft sem maður er tilnefndur til Edduverðlauna og ekki oft sem maður er barnshafandi." Hún vill ekki gefa upp kaupverð en segist einfaldlega hafa ákveðið að gera vel við sig; „Ég sló líka tvær flugur í einu höggi og hugsaði hann sem jóla og áramótakjól, enda passa ég ekki í neitt í fataskápnum," segir hún. Myndin Foreldrar hlaut sex Edduverðlaun. Auk verðlauna fyrir bestan leik kvenna hlaut Nanna einnig verðlaun fyrir handrit ársins sem hún skrifaði ásamt Ragnari Bragasyni, Ingvari E. Sigurðssyni, Víkingi Kristjánssyni og Leikhópnum. Myndin hlaut einnig verðlaun í flokkunum myndataka og klipping, leikari ársins, leikstjóri ársins og kvikmynd ársins. „Við vissum að við höfðum góða mynd í höndunum, en auðvitað er það þvílíkur bónus að fá þessi verðlaun," segir Nanna.
Mest lesið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið Fleiri fréttir Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein