Innlent

Flugþjónustan tekur fyrsta evruposann í notkun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ásmundur Þorvaldsson, hjá Kortaþjónustunni, afhendir Ölmu Gunnlaugsdóttur, rekstrarstjóra hjá Flugþjónustunni evruposa.
Ásmundur Þorvaldsson, hjá Kortaþjónustunni, afhendir Ölmu Gunnlaugsdóttur, rekstrarstjóra hjá Flugþjónustunni evruposa.

Fyrirtækið Kortaþjónustan hefur sett upp fyrstu posana hér á landi sem taka við evrum. Það var Flugþjónustan á Reykjavíkurflugvelli sem tók fyrstu posana í notkun en evruposar gagnast til að byrja með helst fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Fleiri fyrirtæki hafa þegar beðið um að fá slíka evruposa. Þetta þýðir að viðskiptavinir fyrirtækjanna fá uppgefið verð vöru eða þjónustu í evrum og greiða í þeirri mynt.

„Sumir myndu segja að þetta væri fyrsta skrefið í átt að því að evruvæða greiðslukerfið hér á landi, en það er þó sennilega fullsnemmt að fullyrða um það. Engu að síður höfum við orðið varir við áhuga ýmissa fyrirtækja hér á landi fyrir þjónustu á borð við þessa enda hafa viðskiptavinir þeirra oft og tíðum talsvert hagræði af því að losna við að umreikna greiðslur í krónur," segir Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×