Óvissan slæm fyrir skjólstæðinga SÁÁ Höskuldur Kári Schram skrifar 2. maí 2007 17:10 MYND/GVA
Æskilegra hefði verið að nýundirritaður þjónustusamningur SÁÁ við ríkið næði til lengri tíma en næstu áramóta að sögn framkvæmdastjóra hjá SÁÁ. Hann segir óvissuna mjög slæma fyrir skjólstæðinga samtakanna. Samtökin undirrituðu í dag samkomulag við annars vegar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og hins vegar fjármálaráðuneytið um framlengingu þjónustusamnings við ríkið fram að næstu áramótum. Upphaflegur þjónustusamningur var frá ársbyrjun 2002 til árloka 2005. „Við óskuðum eftir því að samningurinn væri til lengri tíma," sagði Ari Matthíasson, einn þriggja framkvæmdastjóra SÁÁ, í samtali við Vísi. „Það voru bara ekki til meiri peningar á fjárlögum." Samkvæmt samninginum sem undirritaður var í dag mun SÁÁ fá eingreiðslu að fjárhæð 80 milljónir frá ríkinu á þessu ári. Samningurinn gildir til áramóta en þá er stefnt að því að nýr þjónustusamningur taki gildi. Ari segir halli á rekstri sjúkrahúss SÁÁ hafa numið 100 milljónum á síðasta ári og stefni í 120 milljónir á þessu ári. Fjárhæðin sem samtökin fá við undirritun samningsins núna komi í veg fyrir að takmarka verði þjónustu en mun fleiri hafa nýtt sér þjónustu samtakanna en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Við stefnum að því að hefja viðræður að nýju næsta haust. Það var mikilvægt að taka strax á þessum hallarekstri ef ekki átti að skerða þjónustu við sjúklinga. Æskilegast hefði þó verið að samningurinn væri til lengri tíma en fram að næstu áramótum. Óvissan er mjög slæm fyrir skjólstæðinga og yfirstjórn SÁÁ."
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira