Lífið

Jóhanna Vala undirbýr sig undir Ungfrú Heim

,,Jújú, ég er orðin voða spennt." segir Ungfrú Ísland, Jóhanna Vala Jónsdóttir sem keppir fyrir Íslands hönd um titilinn Ungfrú Heimur í Kína á laugardaginn.

Jóhanna flaug til Sanya á Hainan eyju í byrjun nóvember vopnuð sex síðkjólum og fjölda kokteil- og sumarkjóla, enda veðrið aðeins annað þarna megin á hnettinum í augnablikinu. Hún undirbýr sig nú af krafti fyrir keppnina, en stelpurnar eru á fullu æfingum frá átta á morgnana til átta á kvöldin. Mikið af fallegum stelpum tekur þátt í keppninni, en Jóhanna er ekki að hafa miklar áhyggjur af útkomunni á laugardaginn. ,,Þetta er bara búið að vera voða gaman, ég ætla ekkert að stressa mig á þessu"

Jóhanna segir frábærar stelpur í keppninni og mikla samheldni í hópnum. Bestu vinkonur sínar í keppninni segir Jóhanna vera fegurðardrottningar frá Ameríku, Suður-Afríku, Skotlandi og Svíþjóð. Það er heilmikið að gera hjá stelpunum. ,,Við fórum til Peking í síðustu viku og vorum í heila viku. Fórum að sjá Kínamúrinn og margt annað spennandi." segir Jóhanna.

Fegurðin ein fleytir manni ekki alla leið í keppninni. Einkennisorð keppninnar er ,,Fegurð með tilgang" og segir Jóhanna að mikið komi inn í valið á næstu heimsfegurðardrottningu. ,,Það skiptir máli að vera góður og fallegur og koma vel fram." segir Jóhanna og bætir því við að stelpurnar þurfi líka að vera duglegar að markaðssetja sig. Þær þurfi að vera svolítið ýtnar og duglegar að koma sér áfram. Þær sem séu mest sjáanlegar séu þær sem eru duglegastar að fylgja myndavélunum. Það sé hinsvegar ekki hennar stíll.

Aðspurð hver hún héldi að ynni, og hvort íslendingar ættu von á sinni fimmtu heimsfegurðardrottningu vildi Jóhanna ekki mikið tjá sig um það. ,,Við stelpurnar erum búnar að spá aðeins í þetta og erum með nokkrar í huga. Ætli ég vilji nokkuð gefa upp um það" segir Jóhanna Vala leyndardómsfull að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.