Lífið

Ganga í hjónaband eftir tuttugu og þriggja ára trúlofun

Ellen og Eyþór.
Ellen og Eyþór. MYND/Fréttablaðið
Rjóminn af íslenskum tónlistarmönnum kemur saman í Fríkirkjunni í kvöld, en þá gengur tónlistarparið Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson í það heilaga. Eftir athöfnina er munu gestir fagna með brúðhjónunum í galleríinu/búðinni/veitingastaðnum Pikknikk úti á Granda.

Hjónin verðandi hljóta að vera nálægt Íslandsmeti í lengd trúlofunar, en þau hafa verið trúlofuð frá árinu 1984.

,,Við ákváðum bara að láta verða af þessu. Bara hafa gaman og njóta þess að vera til." sagði Ellen Kristjánsdóttir þegar Vísir náði tali af henni, og bætti við að börnin hefðu verið farin að spyrja mikið hvenær kæmi að brúðkaupinu.

Parið er þó líklega öllum hnútum kunnugt í brúðkaupsgeiranum, enda meðal ástælustu tónlistarmanna þjóðarinnar, og hafa sungið og leikið í þeim nokkrum í gegnum tíðina.

Hjörtur Magni Jóhannson gefur hjónin saman. Mikið verður um dýrðir í athöfninni og veislunni, en meðal þeirra sem leika í athöfninni eru Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon, Ragnheiður Gröndal og afríska stuðsveitin Super Mama Djombo.

Líklega hefur ekki verið erfitt að finna tónlistarmenn í veisluna. Tónlistarelíta landsins mun væntlega öll heiðra parið með nærveru sinni, og fjölskyldan öll er afar músíkölsk. Bróðir Ellenar er KK, þrjár dætur þeirra eru söngkonur og meðal tengdasona er Steini í Hjálmum. Þá má fastlega gera ráð fyrir að vinir hjónanna taki lagið, en meðal þeirra eru Stuðmenn, Mezzoforte, Flís, og Borgardætur.

Ellen hefur löngu sungið sig inn í hug og hjarta Íslendinga, og í næstu viku kemur svo út geisladiskur með bestu lögum Ellenar í gegnum tíðina. Útgáfupartíið verður þó líklega að bíða eitthvað, en hjónin verða stödd í rómantískri brúðkaupsferð í París þegar diskurinn kemur út.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.