Slegin í andlitið á tónleikum Idolstjörnu Breki Logason skrifar 28. desember 2007 19:52 Ingólfur Þórarinsson
Vísir sagði frá því í morgun að ráðist hefði verið á mann í Bankastræti fyrir utan skemmtistaðinn Sólon. Var hann sleginn í andlitið og kinnbeins- og nefbrotinn auk þess sem nokkrar tennur brotnuðu. Inni á Sólon var Ingólfur Þórarinsson betur þekktur sem Ingó úr Idolinu að spila. Hann staðfesti að slagsmálin hefðu hafist þegar hann var að spila. „Það var einhver gaur með fylleríslæti og alltaf að biðja um óskalag og með tóm leiðindi. Hann henti skyndilega Magic dós í gítarinn minn," segir Ingó og bætir því við að hann hafi hætt að spila og þögn hefði slegið á salinn. Einn tónleikagestur gerði athugasemd við þessa hegðun mannsins en því var svarað með hnefahöggi. Ingó segir að hann hafi heyrt að slagsmálin hafi haldið áfram fyrir utan staðinn með fyrrgreindum afleiðingum. Ingó segir að sér hafi þó ekki orðið meint af en þetta hafi síður en svo verið skemmtileg uppákoma. Ingó var yfirleitt kallaður James Dean þegar hann var í Idolinu og skemmst er að minnast þess þegar hann aðstoðaði Óla Geir fyrrum Herra Ísland að ná kærustu sinni aftur. Þá mætti hann í limmósínu með Óla og lék ljúfa tóna fyrir stúlkuna sem kolféll aftur fyrir sjarmörnum úr Keflavík. Ingó er að spila í kvöld í félagsheimilinu í Þorlákshöfn og hefjast tónleikarnir á miðnætti.
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Fleiri fréttir Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Sjá meira