Lífið

Barnaheill heiðra kvikmyndalandsliðið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bergsteinn fékk viðurkenningu Barnaheilla fyrir Syndir feðranna.
Bergsteinn fékk viðurkenningu Barnaheilla fyrir Syndir feðranna.

Segja má að Barnaheill hafi heiðrað landslið kvikmyndagerðamanna í dag. Þau Guðný Halldórsdóttir, leikstjóri Veðramóta, Ragnar Bragason, leikstjóri Foreldra, og Bergsteinn Björgúlfsson og Ari Alexander Ergils Magnússon, leikstjórar Synda feðranna, hlutu öll árlega viðurkenningu Barnaheilla. Samtökin veita viðurkenningu til einstaklinga eða stofnana fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra.

Að mati Barnaheilla taka allar þessar kvikmyndir á viðkvæmum málum sem snerta börn, réttindi þeirra og aðbúnað. Þær vekja upp áleitnar spurningar um samfélag okkar fyrr og nú og varpa ljósi á afleitar aðstæður barna stundum og áhrifin sem ofbeldi hefur á líf þeirra.

„Þetta er mikill heiður. Það er óneitanlega ánægjulegt eftir þennan mikla tíma sem hefur verið lögð í þessa mynd að einhver skuli veita manni viðurkenningu. Eins og flestir vita er heimildarmyndagerð eitthvað dýrasta hobbý sem hægt er að taka sér fyrir hendur," segir Bergsteinn Björgúlfsson, leikstjóri Synda feðranna.

Bergsteinn segir erfitt að segja til um hvaða þýðingu þessi viðurkenning barnaheilla hafi fyrir mynd sína. „Ég vona að þetta fái fólk til þess að langa til að sjá myndina vegna þess að þetta er svona efni sem sumum finnst erfitt að horfa á og pæla í. En ég held að allir ættu að sjá þessa mynd. Ég held að það sé ekrkert nema mannbætandi. Þetta er svo stór hluti af okkar samtímasögu sem er búin að vera í kyrrþey lengi," segir Bergsteinn.

Guðný Halldórsdóttir, leikstjóri Veðramóta, segist einnig vera mjög ánægð með viðurkenningu Barnaheilla. „Þetta sýnir bara að myndin á erindi við almenning." Hún segir að allt gott umtal komi myndinni til góða í markaðssetningu.

Viðurkenning Barnaheilla er veitt á afmælisdegi Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem er í dag, þann 20. nóvember. Þennan dag árið 1989 var sáttmálinn samþykktur á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

Foreldrar, Syndir feðranna og Veðramót hlutu allar Edduverðlaun fyrir skemmstu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.