Mills segir rottur geta bjargað jörðinni 20. nóvember 2007 11:06 Heather hóf herferðina í Hyde park í gær. MYND/AFP
Heather Mills hvatti í gær alla Breta til að bjarga jörðinni - með því að drekka rottumjólk. Hún hvatti fólk til að hætta að neyta kúaafurða. Í staðinn gætu Bretar notað rottu,- katta,- eða hundamjólk í teið sitt og út á morgunkornið. Heather fer fyrir herferð grænmetishópsins Viva! gegn hlýnun jarðar. Hún segir 80 prósent orsaka hlýnunarinnar koma frá búpeningi þess vegna ættu jarðarbúar að gerast grænmetisætur eða eiga það á hættu að eyðileggja jörðina. „Það er hægt að velja um 25 valkosti í mjólk," sagði Mills sem gjarnan er kölluð Mucca í Bretlandi vegna klámmynda sem hún sat fyrir á. „Af hverju drekkum við ekki rottumjólk, katta- eða hundamjólk?" Sérfræðingar segja tillögur Mills fáránlegar. Ben Mepham prófessor og einn helsti aðili í mjólkurframleiðslu í Bretlandi sagði við breska blaðið Sun að tillögurnar væru fáránlegar. „Hvernig í veröldinni ætlarðu að ná mjólkinni út?" Heather hélt ræðuna í Hyde Park í miðhluta London í gær. Ekki einn fulltrúi almennings mætti á opnunina. Heather sem missti fótlegg í slysi birtist á auglýsingaskilti með slagorðinu: „Þú hefur ekki fótlegg til að standa á." Hún stillir sér upp á lostafullan hátt á öðru skilti sem segir; „Hey Kjöti, þú gerir mig svo heita." Heather mætti í bílalest tveggja bíla. Hún drap ekki á svörtu Benz bifreiðinni sem metin er á fjórar og hálfa milljón á meðan hún veitti viðtöl. Mills sagðist ekki mælast til þess að fólk gerðist grænmetisætur á einni nóttu, en ef það hætti að drekka kúamjólk gæti það spornað við þróuninni." Vegfarandi sem gekk hjá sagði að auglýsingaskiltið líktist pósu úr klámblaði. „Ég trúi ekki að hún geri þetta og kvarti síðan um að vera í sviðsljósinu." Heather berst nú fyrir að fá hluta af auðæfum fyrrverandi eiginmanns síns, Pauls McCartneys. Hún neitaði því í gær að lögmenn hennar hefðu sagt upp samningi við hana og hélt því fram að hún hefði rekið þá.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Fleygt út í vatn af flóðhesti Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Fleiri fréttir Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Fleygt út í vatn af flóðhesti Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Sjá meira