Nordisk Panorama nálgast 15. ágúst 2007 05:15 Þorfinnur Guðnason hefur reynst slægur að kynna verk sín á kynningarmessum eins og Nordisk Panorama
Norræna heimildar- og stuttmyndahátíðin, Nordisk Panorama, fer fram í Oulo í Finnlandi í síðustu viku september. Hátíðin fer sem kunnugt er milli nokkurra borga á Norðurlöndunum, var haldin í Árósum í fyrra og þar áður í Bergen. Báðar standa í skugganum af hátíðahaldinu í Reykjavík fyrir þremur árum þegar slegið var aðsóknarmet sem frændum okkar gengur erfiðlega að jafna. Það eru samtökin Nordisk Filmkontakt sem styrkt eru af norrænu ráðherranefndinni sem standa fyrir þessari farandhátíð sem nýtur talverðrar virðingar í Norður-Evrópu en er líka sótt af fulltrúum víðar að. Hér gefur að líta rjómann af því sem er að gerast í norrænum kvikmyndaiðnaði utan leikinna mynda í fullri lengd. Að viðbættum heimildar- og stuttmyndum sem koma víða að. Í ár er engin íslensk heimildarmynd í keppninni, aðrar myndir eru: Anna eftir Helenu Stefánsdóttur, 2006, leikin, 13’, Anna and the Moods eftir Gunnar Karlsson, 2007, teiknimynd, 27’, Dog eftir Hermann Karlsson, 2007, teiknimynd, 1’, Rattlesnakes eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson, 2007, leikin, 23’, Wrestling eftir Grím Hákonarson, 2007, leikin, 20’. Allar þessar myndir keppa um peningaverðlaun. Í tengslum við fimm borga hátíðina er jafnan haldinn markaður fyrir kaupendur þar sem aðgengilegur er stór banki norrænna mynda sem Nordisk Filmkontakt annast kynningu á um heim allan. Þá er á hátíðinni sérstakt kynningarþing þar sem hópi framleiðenda er gefinn kostur á að kynna verk í vinnslu. Er sú kynning býsna mikilvæg í forsölu verka til dreifingar bæði í kvikmyndahús, á mynddiska og kvikmyndahátíðir. Eitt íslenskt verkefni verður þar kynnt. Heimildarmynd byggð á Draumalandi Andra Snæs Magnasonar sem Þorfinnur Guðnason leikstýrir. Það er firnastórt verkefni á íslenskan mælikvarða og verður fróðlegt að sjá hvaða framgang það fær á messunni. Úrval mynda af hátíðinni fer síðan á flakk og hefur hér á landi verið lunginn í dagskrá hátíðarinnar Reykjavik Shorts and Docs. Nýr forstjóri Norræna hússins sem þessa dagana er að kynna nýtt reyfi þeirrar virtu menningarstofnunar hefur lýst áhuga á að efla hlut kvikmyndasýninga í húsinu og eru heimildarmyndir þar ekki undanskildar. Reykjavík Shorts and Docs var síðast haldin í Tjarnarbíó. Fulltrúi Íslands í Nordisk filmkontakt er Margrét Jónasdóttir, kvikmyndagerðarmaður og sagnfræðingur.
Mest lesið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Einar og Milla eignuðust dreng Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Fleiri fréttir Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira