Heyrnarlausar og þroskaheftar konur misnotaðar 28. apríl 2007 09:00
Tvær ungar konur sem báðar eru heyrnarlausar og þroskaheftar urðu fyrir grófri kynferðislegri misnotkun á síðasta ári. Sleginn hefur verið þagnarmúr um málið, en það er á vitorði stjórnar og forsvarsmanna Félags heyrnarlausra, Félagsþjónustunnar í Kópavogi og fleira fólks sem kemur að málefnum heyrnarlausra með einum eða öðrum hætti. Misnotkunin átti sér stað á menningarhátíð heyrnarlausra á Akureyri 10. til 16. júlí í fyrra sem ungu konurnar sóttu. Annarri var útvegaður svokallaður liðsmaður, sem átti að vera skjólstæðingi sínum til aðstoðar á mótinu. Maðurinn, sem er heyrnarskertur, braut þar á ungu konunni, svo og annarri heyrnarlausri og þroskaheftri konu, með kynferðislegri misnotkun. Félagsþjónustan í Kópavogi útvegaði konunni liðsmanninn, samkvæmt ábendingu frá Félagi heyrnarlausra. Viðkomandi starfsmönnum félagsþjónustunnar var gert viðvart um misnotkunina. Önnur konan hefur verið í ráðgjafarviðtölum eftir atburðinn. Annað atvik varð svo í september þegar heyrnarlaus maður hélt upp á afmæli sitt. Í veislunni var hópur heyrnarlausra karlmanna, sem og ungu konurnar tvær. Þar var klámefni sýnt og mennirnir höfðu uppi kynferðislegt athæfi gagnvart konunum. Fréttablaðið hafði samband við Berglindi Stefánsdóttur, fyrrverandi formann Félags heyrnarlausra, sem haldið hefur utan um rannsókn á kynferðisbrotum gegn heyrnarlausum. Hún kveður málin hafa komið inn á sitt borð og staðfestir að hún hafi hitt annað hinna meintu fórnarlamba, sem staðfest hafi þau. Hún kveðst hafa vísað þessum málum áfram til þeirra sem eigi að hafa með þau að gera. Þau hafa ekki verið kærð til lögreglu. Haukur Vilhjálmsson, stjórnarmaður og starfsmaður Félags heyrnarlausra, vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið leitaði eftir því. Formaður og framkvæmdastjóri félagsins eru í útlöndum. Ekki náðist í félagsmálastjóra Kópavogsbæjar. Konurnar munu báðar hafa verið mjög miður sín eftir þessa atburði, að því er Fréttablaðinu hefur verið tjáð, og glíma við andlega erfiðleika vegna þeirra.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Sjá meira