Lífið

Banki borgar bloggurum

Þórmundur Bergsson. Þetta er tilraunaverkefni og til stendur að bæta í hópinn. Þannig er til dæmis femínistinn Sóley Tómasdóttir á listanum.
Þórmundur Bergsson. Þetta er tilraunaverkefni og til stendur að bæta í hópinn. Þannig er til dæmis femínistinn Sóley Tómasdóttir á listanum.

„Ég ætla að reyna að kaupa birtingu hjá einum til tveimur í viðbót. Allt er þetta fólk sem kemur oft fyrir á lista yfir vinsæla bloggara," segir Þórmundur Bergsson hjá Media Com - birtingaraðila Byrs banka.

Byr hefur gripið til þeirrar nýstárlegu aðferðar að kaupa birtingu auglýsinga sinna hjá völdum bloggurum. Þeir fjórir sem þegar hafa verið valdir eru Óli Björn Kárason, Ellý Ármanns, Guðmundur Steingrímsson og Pétur Gunnarsson. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fá þeir greitt í kringum fimmtíu þúsund krónur á mánuði en allt er það þó háð samningum milli bankans og bloggaranna hvers um sig.

 

Byr sparisjóður lógó logo merki auðkenni SPH SPV

Þórmundur, sem stjórnar þessu verkefni, segir að til standi að fá tvo til þrjá bloggara til viðbótar í þennan hóp en um tilraunaverkefni er að ræða.

„Ég hef til dæmis ekki náð í Sóleyju Tómasdóttur. Hún er klárlega á listanum. Það skiptir okkur engu máli hvort bloggarinn er framsóknarmaður, sjálfstæðismaður, karl eða kona, við erum ekki að þessu eftir slíkum línum," segir Þórmundur aðspurður hvort bankinn sé með vali sínu að reyna að ná um hið pólitíska svið.

Eingöngu er um að ræða þá sem hýsa bloggsíður sínar hjá mbl.is. Ástæðan er einkum sú að mbl.is vísar ekki auglýsingum inn á síður bloggara sinna og gengur út frá því að bloggsíður þeirra séu eign bloggaranna. Hins vegar mun því svo háttað, til dæmis á Vísi.is, að þar er auglýsingum veitt inn á síður bloggaranna og hafa þeir ekkert um það að segja.

 

Fimmtíu þúsund á mánuði renna í vasa þessara eðalbloggara sem Byr hefur valið vegna vinsælda þeirra og umbúðalausra skoðana.

Trausti Haraldsson, markaðsstjóri hjá Byr, segir bankann rétt að byrja. Byr sjái sér hag í því að vera inni á mbl.is en þar sé eldri markhópur, meiri ímynd og gæði. „Þarna fara almennt inn 130 þúsund á viku."

Trausti bindur við það vonir að þetta styrki bloggheima. Skrif margra virðist full vinna og bankinn vill með þessu vekja athygli á persónulegri þjónustu sinni. „Þetta er nýr vinkill sem fólk skoðar. Vandamálið með hefðbundna miðla er að þar er reynt er að hafa allt hlutlaust. Fólk hefur gaman af umbúðalausum skoðunum."

 

Guðmundur Steingrímsson

Þórmundur segir sig hafa langað að vera inni hjá topp fimm til sjö bloggurum og sjá hvað gerist. „Ellý til dæmis, einn mest lesni bloggarinn, henni fannst þetta frekar skemmtilegt og er allt í einu farin að hafa tekjur af pistlum sínum. Ekkert ósvipað og menn fá greitt fyrir pistla í Fréttablaðinu."

Guðmundur Steingrímsson, einn þeirra útvöldu, segir enga skilmála í samningum. „Þeir vildu auglýsa á heimasíðu minni og það er velkomið. Eins og auglýsendur eru almennt ekki að kaupa fjölmiðla þó þeir auglýsi í þeim. Þetta er hins vegar stór áfangi í sögu þessa miðils: gummisteingrims.blog.is," segir Guðmundur Steingrímsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.