Þrjú ár í lokaþátt Lost 9. maí 2007 09:00 Þrjár þáttaraðir til viðbótar af Lost verða teknar upp.
Þrjár þáttaraðir til viðbótar af hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Lost verða teknar upp. Eftir það ljúka þættirnir göngu sinni, árið 2010. Að sögn framleiðenda mun lokaþátturinn sem svo margir hafa beðið eftir koma fólki gjörsamlega í opna skjöldu. „Vegna sérstöðu þáttanna vissum við að við yrðum að finna tímasetningu á lokaþáttinn til að geta haldið áfram af fullum krafti og til að gefa áhorfendum þann endi sem þeir eiga skilið,“ sagði forseti sjónvarpsstöðvarinnar ABC. Hver þáttaröð hefur að geyma sextán þætti þar sem haldið verður áfram að fylgjast með eftirlifendum flugslyss og ævintýrum þeirra á eyðieyju. Á sínum tíma horfðu tuttugu milljónir Bandaríkjamanna á Lost í hverri viku en nú hefur áhorfið hrapað niður í tólf milljónir. Einnig hefur dregið töluvert úr áhorfinu í Bretlandi. Guðmundur Ingi Kristjánsson, innkaupastjóri erlends efnis hjá RÚV, segir að áhorfið hafi verið að aukast úti í heimi eftir töluverða lægð. „Þeir urðu að gera hlé í vetur og það tók svolítinn tíma að ná áhorfinu upp eftir það. Þeir hafa ekki náð sömu hæðum og í fyrra en það kvöld sem Lost er sýnt er þátturinn vinsælasta efnið á öllum sjónvarpsstöðvum,“ segir Guðmundur, en þriðja þáttaröðin er í gangi um þessar mundir. Hann segir að Lost sé með um 20 til 30 prósenta áhorf hér á landi og sé næstvinsælasti erlendi þátturinn hjá RÚV, skammt á eftir Desperate Housewives. „Fólk virðist vera ánægt með þáttinn þótt hann höfði kannski meira til yngri hópanna,“ segir Guðmundur og telur litla sem enga þreytu vera komna í áhorfendur. „Ég heyri það frekar í eldri geiranum. Þeir sem byrjuðu að horfa segja að þetta sé orðin óttaleg vitleysa en það hefur ekki komið niður á áhorfinu.“
Mest lesið Margbraut á sér ökklann á Snæfellsjökli Lífið Söngkonan Jill Sobule lést í húsbruna Lífið Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns Lífið 50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Áskorun Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Dóttir De Niro kemur út sem trans Lífið „Þetta er lúmskt skrímsli“ Lífið Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Lífið samstarf María Sigrún leikur í einni dýrustu mynd allra tíma Bíó og sjónvarp Rapphljómsveit til rannsóknar hjá hryðjuverkadeildinni Lífið Fleiri fréttir Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira