Löggur í vanda 22. mars 2007 08:00 Nýliðinn og harðhausinn Jason Stratham og Ryan Philippe þurfa að eltast við hinn miskunnarlausa tölvuþrjót Lorenz.
Kvikmyndin Chaos verður frumsýnd í Laugarásbíói um helgina en hún segir frá reynsluboltanum Quentin Connors sem tekur fram skjöldinn og byssuna á nýjan leik til að eltast við klókan og miskunnarlausan bankaræningja. Connors hafði hætt eftir að hafa lent í skelfilegum skotbardaga. Þegar bankaræninginn Lorenz tekur banka í gíslingu ákveður lögreglan að fá lögreglumanninn aftur til starfa og ráða nýliðann Shane Dekker til að aðstoða hann. Þegar Lorenz sleppur úr klóm lögreglunnar kemur í ljós að hann hefur ekki rænt einum eyri heldur komið fyrir vírus í tölvukerfi bankans sem gerir honum kleift að ræna milljörðum með tölvuna eina að vopni. Þar að auki virðist ræninginn vera kaldrifjaður morðingi og tekur samstarfsmenn sína miskunnarlaust af lífi. Það eru breski harðhausinn Jason Stratham og Wesley Snip-es sem eigast við í þessari hasarmynd Tony Giglio en meðal annarra má nefna Ryan Phillippe sem ætti að vera Íslendingum að góðu kunnur fyrir leik sinn í Flags of our Fathers.
Mest lesið Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Gagnrýni Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Lífið Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Lífið Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna Lífið Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Lífið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig Lífið Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Lífið „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Lífið Fleiri fréttir Sælkerabíó á RIFF: Sjónræn matarveisla á Plöntunni og smakkbíó á Ramen Momo Sannfærði Balta um að snúa aftur Fróði og Gandálfur snúa aftur í leitinni að Gollri Terence Stamp látinn Auglýsa eftir innsendingum til íslensku sjónvarpsverðlaunanna Nýr Rambo fundinn Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira