Skuggahliðar Los Angeles 11. janúar 2007 14:00 Josh Hartnett og aaron Eckhart reyna að hafa uppi á morðingja ungrar kvikmyndaleikkonu í The Black Dahlia.
Bandaríski glæpasagnahöfundurinn James Ellroy hefur haldið merkjum gömlu meistara harðsoðnu hefðarinnar á lofti með glæsibrag í verkum sínum þar sem drungalegur „film noir“ andi svífur yfir vötnum. Curtis Hanson kvikmyndaði glæpasögu hans, L.A. Confidential með miklum glæsibrag árið 1997 og nú hefur Brian De Palma afgreitt aðra bók Ellroys, The Black Dahlia, og afraksturinn verður frumsýndur á Íslandi á morgun. Ellroy byggði þessa sögu sína á sönnu sakamáli en spann utan um það sögu um spillingu, ást, þráhyggju, græðgi og hnignun mannlegra gilda. Árið 1947 fannst vægast sagt illa útleikið lík hinnar 22 ára gömlu Betty Short í Los Angeles. Betty var smástirni í Hollywood og hafði háleit markmið um að sigra heiminn á hvíta tjaldinu áður en sjúkur morðingi batt enda á þá drauma hennar. Morðgátan er enn óleyst en hefur verið fólki og þá ekki síst blaðamönnum, rithöfundum og handritshöfundum endalaus uppspretta vangaveltna og samsæriskenninga. Fjörutíu árum eftir að glæpurinn var framinn byggði Ellroy svo metsölureyfara sinn á málinu, ekki síst í þeirri von að með bókinni gæti hann skrifað sig frá skuggum eigin fortíðar en móðir hans var myrt árið 1958. Í The Black Dahlia reyna tveir ungir lögreglumenn og fyrrverandi hnefaleikarar, Lee Blanchard (Aaron Eckhart) og Bucky Bleichert (Josh Hartnett) að hafa hendur í hári morðingjans. Við rannsóknina flækjast þeir í vef lyga og spillingar og málið gengur nærri þeim báðum og hefur áhrif á einkalíf þeirra. Blanchard fær málið á heilann og óeðlilegur áhugi hans á Betty ógnar sambandi hans við hina fögru Kay (Scarlett Johansson) á meðan Bleichert fellur fyrir Madeline Linscott (Hillary Swank) sem tengist fórnarlambinu á óheppilegan hátt.
Mest lesið „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Lífið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Laufey „splittaði G-inu“ á tónleikum í Dublin Lífið Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Lífið Kórstjórinn sem ól upp kynslóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjartalaus skóli“ Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Gimpið í Pulp Fiction er látið Lífið Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Fleiri fréttir Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira