Innlent

Sjálfstæðisflokkurinn í sókn

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ er í stórsókn, samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir NFS og lætur nærri að tveir af hverjum þremur ætli að kjósa hann. Tilraun Framsóknarmanna og Samfylkingarfólks til að sameinast í einn lista, A lista, gegn Sjáflstæðisflokknum, virðist því vera að mistakast. Þessir flokkar fengu samanlagt 47 prósenta fylgi í síðustu ksoningum, en mælast nú með 32 prósent. Fylgi Sjálfstæðsiflokksins mælist hinsvegar 68 prósent, eða 15 prósentustigum meira en í kosningunum.--






Fleiri fréttir

Sjá meira


×