Lífið

Frægir borða lax í megrunarskyni

Sverrir Þór Sverrisson Tekur líkamsræktina föstum tökum og étur lax í hvert mál.
Sverrir Þór Sverrisson Tekur líkamsræktina föstum tökum og étur lax í hvert mál.

Við erum þrír sem erum að prófa þetta en enn sem komið er hefur þetta gengið mjög vel, segir útvarpsmaðurinn og líkamsræktarþjálfarinn Ívar Guðmundsson, en nýtt æði virðist vera í uppsiglingu hjá þeim Íslendingum sem vilja koma sér í form. Íslenski laxinn ætlar nefnilega að verða nýjasta megrunarlyfið á markaðinum.

Aðferðin er mjög einföld, segir Ívar. Þú borðar haframjöl í morgunmat með soðnu vatni og einni teskeið af próteini, útskýrir útvarpsmaðurinn. Tveimur og hálfum tíma seinna borðar þú 80 grömm af laxi sem síðan verður í matinn fimm sinnum á dag næstu sex daga, segir líkamsræktarþjálfarinn. Meðal þeirra sem hafa ákveðið að taka líkamsræktina föstum tökum með þessum nýstárlega hætti, að sögn Ívars, er enginn annar en Sverrir Þór Sverrisson, sjónvarpsmaðurinn góðkunni en hann ætlar augljóslega að koma sér í gott form fyrir komandi átök.

Átið á laxinum kemur eflaust mörgum spánskt fyrir sjónir en þessi aðferð er upprunnin hjá góðum vini Ívars, vaxtarræktartröllinu Arnari Grant, og segir Ívar að laxinn innihaldi mikið af góðri fitu sem segir vondu fitunni stríð á hendur og losar líkamann við hana. Fólk vill oft að hlutirnir gerist mjög hratt og menn hafa verið að missa kíló á dag með þessari aðferð, segir Ívar og telur að þeir sem prófi fái nú ekki ógeð af þessari vinsælu afurð. Ég er sjálfur á fimmta degi og er enn ekki búinn að fá nóg af laxinum, segir Ívar sem nýverið fékk gefins góðan afla frá Bubba Morthens, beint úr einhverri af betri laxveiðiám landsins þannig að ekki væsir um kappann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.