Lífið

Fékk sér húðflúr á Íslandi

Húðflúrið
Þessi rún markar tímamótaskref á ferli sjálfsbreytingar og lét Liz setja það aftaná hálsinn.
Húðflúrið Þessi rún markar tímamótaskref á ferli sjálfsbreytingar og lét Liz setja það aftaná hálsinn.

Bandaríski rithöfundurinn Liz Tuccillo var stödd hér á landi fyrir viku síðan í rannsóknarvinnu fyrir nýjustu bók sína "How to be single" eða hvernig á að vera á lausu. Hún kom til landsins í samvinnu við Eddu útgáfu og dvaldi hér í sex daga.

Rithöfundurinn hefur gert garðinn frægan fyrir að skrifa handritið að vinælu sjónvarpþáttunum Beðmál í Borginni eða Sex and the City var búin að ákveða það fyrirfram að fá sér tattú á Íslandi en Brynja Gunnarsdóttir, þjónustustjóri Eddu útgáfu, var með henni í för "Ég hringdi í Sverri Þór Einarsson sem er með tattústofu á Laugaveginum og ræsti hann út á laugardaginn með litlum fyrivara," segir Brynja en hún er sjálf með stjörnu á öxlinni eftir Sverri.

Tuccillo gerði margt á meðan dvöl hennar stóð og hélt meðal annars konuboð í Iðu þar sem hún leiddi umræður til þess að fá að vita meira um einhleypar íslenskar kvenmenn. Auk þess skoðaði Tuccillo helstu náttúruperlur Íslendinga og fór á ball með Pöpunum á Nasa.

Liz var harðákveðin í að fá sér tattú og fann mynd af rún sem henni leist vel á á netinu. Rúnin þýðir tímamót, breyting eða umskipti og lítur út eins og lítil slaufa í ramma. "Hún stóð sig mjög vel, ég hélt í hendina á henni og hvatti hana áfram," segir Brynja hlæjandi. Tökulið var með henni hér á landi og tók viðburðinn upp á mynd og geta áhugasamir fundið það á upplýsingavef Yahoo undir Liz Tuccillo sem leitarnafn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.