Iðrast gjörða sinna 2. ágúst 2006 13:00 Mel Gibson og Robert Downey Báðir hafa komist í kast við lögin vegna vímuefnaneyslu en Downey sat í steininum fyrir kókaínneyslu. Gibson hefur nú beðist afsökunar á framferði sínu. MYND/AFP
Stórleikarinn og leikstjórinn Mel Gibson hefur beðist afsökunar á framferði sínu en hann var sem kunnugt er handtekinn fyrir að vera ölvaður undir stýri. Gibson barðist við áfengissýki á upphafsárum sínum í Hollywood en tók á sínum málum þegar ferillinn var kominn í hættu. Hann frelsaðist síðan í kaþólsku kirkjunni og er meðlimur í mjög strangtrúum söfnuði innan hennar. Samkvæmt talsmanni Gibsons hefur hann nú skráð sig í meðferð en ekki virðast öll kurl komin til grafar. ABC sjónvarpsstöðin hefur hætt við að framleiða sjónvarpsþætti um helför gyðinga sem Gibson hafði í smíðum eftir að leikarinn lét hafa eftir sér niðrandi ummæli um gyðinga þegar handtakan var gerð. Talsmaður sjónvarpsstöðvarinnar vildi þó sem minnst gera úr málinu og sagði einfaldlega að ekkert handrit hefði sést í rúm tvö ár og því hefði verkefnið verið blásið af. Hins vegar vildi Ari Emanuel, áhrifamikill umboðsmaður í Hollywood, að kvikmyndaframleiðendur sniðgengju hugmyndir Gibsons. "Leikarinn getur ekki leyft sér að segja slíka hluti án þess að taka afleiðingunum," skrifaði hann á Huffington Post-blogginu. Ummæli Gibsons koma á versta tíma því stjórn Ísraels hefur legið undir ámælum vegna átakanna í Líbanon. Gibson hefur áður þurft að takast á við gagnrýni frá samfélagi gyðinga í Bandaríkjunum en kvikmyndin The Passion of the Christ sem Gibson leikstýrði var harðlega fordæmd þar sem hún þótti ganga einum of langt í að sýna sök gyðinga á dauða Jesú Krists. Lögreglan í Malibu gaf frá sér yfirlýsingu um málið á mánudag en þar kom fram að Gibson hefði játað sig sekan á staðnum og að lögreglan hefði sýnt honum tilhlýðilega virðingu. Lögreglumaðurinn James Mee, sem handtók Gibson, sá sig meðal annars tilneyddan til að gefa frá sér yfirlýsingu þar sem hann vonaðist til að handtakan myndi ekki skaða Gibson á neinn hátt. "Ég vona bara að leikarinn setjist ekki aftur undir stýri þegar hann hefur drukkið áfengi," sagði Mee.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira