Eyrún Huld, Marinó og Magni sameinuð á ný 2. ágúst 2006 12:45 Fjölskyldan sameinuð á ný ,Þessi mynd var tekin skömmu áður en Magni hélt til Los Angeles á vit frægðarinnar. Þau verða nú sameinuð á ný eftir langa fjarveru. MYND/Vilhelm
Í nótt var einhver magnaðist Rock Star - þátturinn sýndur í beinni útsendingu á Skjá einum. Eins og greint var frá í fjölmiðlum fékk Magni óvænta gjöf frá Skjá einum en það var myndband með unnustu hans, Eyrúnu Huld Harðardóttur og syni þeirra Marinó. Á vefnum var hægt að sjá viðbrögð Magna við þessari hjartnæmu stund þegar hann fygldist með syni sínum ganga með aðstoð móður sinnar, spila á gítar og heilsa pabba sínum. "Ef það væri eitthvað sem ég gæti sagt við þau núna, þá yrði það hversu mikið ég sakna þeirra," sagði Magni með tárin í augunum. "Þetta myndband hefur komið mér aftur á rétta braut og minnt mig á hvað ég er að gera hérna," bætti hann við. Líklegast hefur Magni þó ekki gert sér grein fyrir hvaða áhrif þetta myndband myndi hafa þegar hann valdi sér lagið Clocks með Íslandsvinunum Coldplay og söng það fyrir Supernova í nótt. Þegar kom að gagnrýni fékk Magni óvæntan stuðning frá sjálfum Tommy Lee sem hingað til hefur ekki birst áhorfendum sem elskandi fjölskyldufaðir. "Ég veit nákvæmlega hvernig það er að vera fjarri börnunum löngum stundum og skil hvernig þér líður," sagði hann við Magna og flestir hafa væntanlega búist við því að þarna myndi þar við sitja. Magna var tilkynnt að Rock Star- þáttturinn myndi fljúga bæði Eyrúnu Huld og syninum Marínó til Los Angeles þar sem þau myndu hittast í fyrsta sinn síðan að söngvarinn hélt á vit frægðarinnar í Los Angeles. Iceland Air reyndist þar mikil hjálparhella því flestar flugvélar voru bókaðar langt fram í tímann. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun bróðir Magna, Áskell Heiðar Ásgeirsson, og kona hans, Vala Bára Valsdóttir, einnig fljúga út og verða Eyrúnu Huld til aðstoðar þar sem um er að ræða átján tíma ferðalag en flogið verður fyrst til Boston, þaðan til Las Vegas og loks til Los Angeles. Greinilegt er að rokkbandið sér mikið í Magna því þetta er í fyrsta skipti sem brugðið er svona útaf venjunni í þáttunum. Vafalítið hafa því verið felld tár á Borgarfirði Eystri þar sem fjölskylda Magna sat og horfði á hetjuna sína syngja sig enn og aftur inní hjörtu heimsbyggðarinnar.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira