Erlent

Pinochet ber við minnisleysi

Augusto Pinochet var leiddi herforingjastjórnina sem stjórnaði Chile á árunum 1973 til 1990. Myndin er frá árinu 1996.
Augusto Pinochet var leiddi herforingjastjórnina sem stjórnaði Chile á árunum 1973 til 1990. Myndin er frá árinu 1996. MYND/AP

Fyrrum einræðisherra Chíle, Augusto Pinochet, sagði dómara í gær að hann muni ekki eftir og hann sé ekki ábyrgur fyrir aðgerðum öryggissveita sinna í leynifangelsum þar sem þúsundir manna voru pyntaðir og hundruð drepin. Auk Pinochets voru 59 til viðbótar yfirheyrðir vegna Villa Grimaldi leynifangelsisins.

Meðal fanga sem eitt sinn máttu dúsa í fangelsinu voru núverandi forseti Chile: Michelle Bachelet og móðir hennar. Pinochet var sviptur friðhelginni sem fyrrverandi forsetar njóta allajafna, en illa hefur gengið að rétta yfir honum vegna bágrar heilsu Pinochets, sem er níræður að aldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×