Erlent

Útfararstjórar játa að hafa stolið líffærum

Sjö útfararstjórar í New York hafa játað að hafa tekið þátt í umfangsmiklum líffærastuldi. Líffærin voru fjarlægð úr líkum án samþykkis ættingja og voru síðan seld til líftæknifyrirtækja. Saksóknari í málinu segir að hundruð líkamshluta hafi verið seld með þessum hætti og að fleiri yrðu líklega ákærðir.

Nöfn útfararstjóranna sjö hafa ekki verið birt en þeir voru samvinnuþýðir og játuðu sinn þátt í sakamálinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×